fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans andsvar. Ég held að það sé óhætt að segja að ef litið er þannig á að hækkun launavísitölu muni öll skila sér inn í árlega breytingu fjárhæða varðandi greiðslur almannatrygginga sé hægt að hafa verulegar áhyggjur af því. Ég held hins vegar að við þurfum einfaldlega að horfa til þess hvernig orðalag ákvæðisins er eftir breytingar sem við samþykktum hér í þingsal fyrir nokkrum vikum. Greiðslur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 42. gr. og frítekjumark skv. 22. og 30. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af þróun launavísitölu frá 1. júní 2025, samanber lög um launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Síðasti málsliðurinn hefur verið í þessari grein allan tímann. Hann var líka í greininni þegar við skoðuðum launaþróun. Ég met það svo, eins og ég sagði hér áðan, að tvennt gerist við það. Við erum búin að breyta orðalaginu og það mun hafa áhrif á greiðslur almannatrygginga og ég held að þær muni hækka en þær munu ekki hækka nákvæmlega eins og launavísitalan. Það er bara mín skoðun á þessu og ég verð bara að éta það ofan í mig þegar og ef að því kemur. Þetta er mín skoðun og ég lít þannig á þetta. Ég sé það hins vegar alveg að margir sem hafa fjallað um þetta meta það þannig að búið sé að ákveða að tengja vísitöluna fast við greiðslurnar. Ég lít ekki þannig á þetta.