fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Hér koma fram þessi sjónarmið sem komu fram þegar við ræddum málið fyrir páska. Það er svolítið misjafn skilningurinn á lögunum miðað við það sem hæstv. félagsmálaráðherra sagði þá og síðan aftur hæstv. orkumálaráðherra í þeirri umræðu. Hver er þá raunverulega breytingin á málinu? Í minnisblaði sem velferðarnefnd fékk í fyrra — við erum búin að ræða þetta mál í heilt ár í þinginu — kom fram að miðað við neysluvísitölu þá hafa almannatryggingar hækkað um 100% frá 1997. Ég leiðrétti hér með það sem ég sagði í umræðunni fyrr í dag; ég sagði að bæturnar hefðu hækkað um 18% umfram launavísitölu frá 1997 en það er 8% umfram launavísitölu sem bæturnar hafa hækkað. Það er bara gott að fá þennan skilning fram vegna þess að hann er ekki alveg eins og Flokkur fólksins tjáir sig opinberlega um málið.
Mig langar síðan aðeins að koma inn á punkt fimm í umsögn fjármálaráðs og lesa aðeins upp úr greinargerð fjármálaráðs þar sem segir, með leyfi forseta: „Fjallað er um óútfærðar afkomubætandi aðgerðir í framlagðri áætlun. Nefnt er að fækka skuli ríkisstarfsmönnum og að farið verði í aðrar sértækar hagræðingaraðgerðir án þess að nokkuð sé fjallað um framkvæmdina. Slíkt er ógagnsætt og ótrúverðugt.“
Er þetta ekki svolítið svona dómur á þessa fjármálaáætlun, hvernig fjármálaráð talar einmitt um það sem snýr að þessum aðgerðum sem er verið að tala um, um óútfærðar afkomubætandi aðgerðir og að draga úr trúverðugleika. Síðan er næsti punktur sem er óljós, hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni. Þetta er því allt svolítið í þoku, hvernig eigi að takast á við þessi mál.