157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:14]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans seinna andsvar. Ég sagði það hér áðan þegar ég svaraði andsvari hv. þm. Bergþórs Ólasonar að það er að sönnu hægt að horfa á það þannig að það sé nokkuð harkalega til orða tekið í þessari álitsgerð. Ég velti því fyrir mér hvort það geti verið að það hversu óljóst þetta er sé vegna þess að við erum ekki búin að fá þau gögn sem kunna að koma fram nú undir mánaðamót, ef ég hef skilið umræðuna rétt; að þá komi betur fram hvað þarna er á ferðinni. Ég ber alla vega von í brjósti um það.

Það kann að hafa verið önnur spurning sem er horfin úr huga mér. Er hægt að hjálpa mér? (Gripið fram í: Já, það er varðandi óútfærðar afkomubætandi aðgerðir og trúverðugleika sem fjármálaráð bendir á … )Já, ég taldi að ég væri að svara því að þær væru óútfærðar vegna þess að við værum ekki með gögnin. Það er auðvitað þannig að það er alveg hægt að taka undir að það kann að vera óheppilegt að við séum ekki með gögnin við fyrri umræðu um þessa þingsályktunartillögu. En ég ítreka það sem ég sagði í ræðu minni áðan að það er fjármálaráðherra að meta hvað eigi að fylgja með. Auðvitað er það þannig að þegar ákveðin framkvæmd hefur verið kannski til nokkurra ára þá eru þingmenn vanir því að fá ákveðin gögn og kannski má segja að það sé alveg eðlilegt að þeir fái þau gögn. Ég ítreka bara það sem ég sagði hér áðan að ég fagna því að búið sé að höggva á þennan hnút og fagna því líka að við munum ekki þurfa að eyða tíma í umræðu um gagnaskort.