157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:16]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Svona rétt í framhaldi af andsvörum hér áðan og þeirri umræðu sem þar var vil ég bara ítreka mikilvægi þess að við séum með öll gögn í fyrri umræðu um fjármálaáætlun og að þau gögn séu komin fram strax í byrjun þegar vinna hefst við þetta mál. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir eftirlitshlutverk þingmanna að mínu viti þegar við erum að fást við kannski eitt af tveimur til þremur stærstu málum hvers þingvetrar. Fjárlög og fjármálaáætlun eru gríðarlega mikilvæg mál og mikilvægt að eftirlitshlutverk þingmanna sé virt og við höfum möguleika til að fara yfir málin með þeim hætti.

Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, eitt mikilvægasta mál hvers þingvetrar og hér ræðum við stóru myndina til lengri framtíðar. Fjármálaáætlun hvers tíma er pólitísk yfirlýsing um forgangsröðun og framtíðarsýn meiri hlutans, ríkisstjórnar hverju sinni. Hún á ekki aðeins að vera tæknilegt plagg með töflum og tölum. Hún er í raun, ásamt fjárlögum hverju sinni, mikilvægasta mál hverrar ríkisstjórnar. Í fjármálaáætlun birtist með skýrum hætti hvernig stjórnvöld hugsa um heimilin í landinu, atvinnulífið, grunnþjónustuna, innviðina og ekki síst það hvort við ætlum að skilja við ríkisfjármálin í betra ástandi fyrir næstu kynslóðir. Þess vegna skiptir þessi umræða gríðarlega miklu máli. Hún snýst ekki bara um bókhald, hún snýst um traust, aga, festu og skynsemi í ríkisrekstrinum.

Ég vil koma aðeins inn á umsögn fjármálaráðs um fjármálaáætlunina. Það fer ekki á milli mála að fjármálaráð gefur ríkisstjórninni, meiri hlutanum, falleinkunn vegna launavísitölumálsins sem við höfum rætt töluvert hér í dag, þ.e. að setja launavísitölu á almannatryggingar. Ég vitna í umsögn fjármálaráðs, punkt tvö í kaflanum um helstu ábendingar og ályktanir, þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála. Sú víðtæka og sjálfvirka vísitölutenging almannatrygginga sem nú hefur verið fest í lög felur í sér mikla hættu á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs. Fjármálaráð telur þetta áhættusama stefnumótun sem getur haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála.“

Í þriðja punkti sama kafla segir, með leyfi forseta:

„Vísitölutenging almannatrygginga kallar á endurskoðun útgjaldahámarks. Hámark raunvaxtar útgjalda stöðugleikareglu var ákvarðað áður en vísitölutenging almannatrygginga var lögfest. Það útgjaldasvigrúm sem stjórnvöld töldu sig hafa áður en lögin voru samþykkt er ekki lengur til staðar. Fjármálaráð telur að vísitölutenging almannatrygginga sé forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglu til lækkunar.“

Virðulegur forseti. Hér er einnig rétt að vitna í það sem stendur á bls. 35 í þingsályktunartillögunni sem við ræðum hér. Þar segir, með leyfi forseta:

„Útbreiddar vísitölutengingar, s.s. í lánum, leigusamningum, útboðum og þjónustusamningum, gera það auk þess að verkum að snarpar hækkanir á heimsmarkaði, s.s. á orku, olíu og flutningi, sem eru í eðli sínu tímabundnar, hafa tilhneigingu til þess að hafa viðvarandi áhrif á verðbólgu.“

Ég vil taka undir þessi sjónarmið sem koma fram í þingsályktunartillögunni. Mig grunar að við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra séum sammála um að launavísitölumálið, sem við samþykktum í þinginu rétt fyrir páska, sé ákaflega óskynsamlegt mál og að við hæstv. ráðherra getum tekið undir ábendingar fjármálaráðs sem ég fór yfir hér áðan.

Ég hef í gegnum árin lagt áherslu á að ríkisfjármál verði að byggjast á ábyrgð. Sú hugsun hefur ekki breyst. Áherslur hafa verið skýrar um að halda aftur af skuldasöfnun, tryggja stöðugleika, styðja við verðmætasköpun og byggja upp innviði sem nýtast landsmönnum öllum. Það sem hefur breyst eru aðstæður og því hefur tónn umræðunnar líka eðlilega harðnað. Þegar aðstæður versna, þegar verðbólga étur kaupmátt fólks, þegar vextir hækka og þegar útgjaldavöxtur ríkisins verður meiri en efni standa til dugir ekki lengur að tala um góðan ásetning. Þá þarf að kalla eftir agaðri vinnubrögðum, skýrari forgangsröðun og ábyrgð.

Virðulegi forseti. Mikilvægar umbætur hafa náðst á undanförnum 10–15 árum í ríkisfjármálum. Með leyfi forseta vitna ég í það sem stendur á bls. 34 í þeirri fjármálaáætlun sem við ræðum hér:

„Mikilvægar umbætur hafa verið gerðar á umgjörð um peningastefnu, fjármálastöðugleika og ríkisfjármál sl. rúman einn og hálfan áratug, síðast með innleiðingu stöðugleikareglu í lög um opinber fjármál. Umgjörðin um efnahagsstefnuna er afar sterk, eins og ítrekað er fjallað um í skýrslum alþjóðastofnana og lánshæfismatsfyrirtækja.“

Þetta er vinna sem er búin að standa yfir í 10–15 ár. Samhliða því þarf að leggja ríka áherslu á innviðauppbyggingu. Það er ekki nóg að tala um aðhald ef við gleymum því að samfélagið þarf á fjárfestingu í innviðum að halda. Fjárfesting í vegum, flugvöllum, höfnum, heilbrigðisinnviðum, fjarskiptum og menntakerfi er ekki kostnaður sem líta má á sem óþarfa útgjöld. Þetta eru grunnstoðir samfélagsins og forsenda verðmætasköpunar.

Virðulegur forseti. Undanfarin misseri hefur umræðan þó tekið nýja stefnu, ekki vegna þess að meginhugsunin hafi breyst heldur vegna þess að staðan í hagkerfinu hefur breyst. Verðbólgan hefur bitnað hart á heimilum og fyrirtækjum. Vextir fara hækkandi á nýjan leik. Sú þróun sem fór af stað undir lok síðasta kjörtímabils og inn í fyrstu mánuði þessa kjörtímabils stöðvaðist fyrir um ári, þ.e. lækkun stýrivaxta eða meginvaxta Seðlabankans. Þróunin hefur snúist við og stýrivextir hækka nú á nýjan leik. Fjárlögin fyrir árið 2026, sem voru afgreidd hér í þinginu í desember síðastliðnum, hafa ýtt undir hækkun verðbólgunnar eins og við þekkjum. Það var varað við þeim skattahækkunum sem voru afgreiddar frá þinginu í desember síðastliðnum. Fólk finnur fyrir þessu í hverjum mánuði þegar afborganir hækka, þegar matarverð hækkar, þegar ráðstöfunartekjur duga skemur. Við slíkar aðstæður skiptir gríðarlega miklu máli að ríkisvaldið vinni ekki gegn Seðlabankanum heldur með stöðugleikanum. Ríkisfjármálin verða að vera hluti af lausninni en ekki hluti af vandanum. Ég hef einnig bent á að fjármálaáætlun megi aldrei vera þannig úr garði gerð að útgjaldaramminn verði sjálfkrafa að gólfi í stað þaks. Það er hættuleg hugsun. Ef hver fjárheimild verður að sjálfgefnum útgjöldum veikist aginn smám saman. Þá fer kerfið að hugsa þannig að öllu sem rúmast innan ramma verði að ráðstafa í stað þess að spyrja á hverju ári: Er þetta nauðsynlegt? Skilar þetta árangri? Er hægt að gera betur? Fjármálaáætlun á að setja mörk, ekki gefa frípassa á sjálfvirkan útgjaldavöxt.

Virðulegi forseti. Fjármálaáætlun er ekki sterkari en forsendurnar sem hún byggir á. Ef hagspár eru of bjartsýnar, ef framleiðnivöxtur er vanmetinn eða ofmetinn, ef tekjuhliðin er byggð á ótraustum stoðum þá veikist áætlunin. Þegar áætlunin veikist veikist líka trúverðugleiki ríkisfjármálanna. Það er ekki nóg að leggja fram fallega mynd af framtíðinni. Verkefnið er að leggja fram raunhæfa mynd, jafnvel þótt hún sé erfiðari pólitískt. Þetta er ástæða þess að ég hef gagnrýnt veikleika í forsendum og skort á festu í sumum fjármálaáætlunum síðustu ára. Þegar ríkisstjórn leggur fram áætlun með litlu svigrúmi, veikri afkomu og mikilli óvissu þá er ekki nóg að vona að allt fari vel. Þá þarf að sýna fram á hvernig markmiðunum verði náð, hvaða aðgerðir standi að baki og hver viðbrögð verða ef forsendur bresta. Án þess verður fjármálaáætlun meira að óskhyggjuplaggi en stjórntæki.

Virðulegi forseti. Við verðum líka að muna að agi í ríkisfjármálum er ekki andstaða velferðar. Þvert á móti. Ábyrg fjármál eru forsenda þess að við getum staðið vörð um velferðarkerfið til lengri tíma. Ef ríkissjóður missir trúverðugleika, ef verðbólga festist í sessi, ef vextir haldast háir, bitnar það mest á þeim sem minnst hafa á milli handanna. Það bitnar á ungu fólki að reyna að kaupa sína fyrstu íbúð, á barnafjölskyldum sem finna fyrir hækkandi afborgunum og eldri borgurum sem búa við þröngan kost. Þess vegna er aðhald ekki kaldrifjuð hugmyndafræði. Það er félagslegt réttlætismál. Hið sama gildir um verðmætasköpunina. Ríkið getur ekki eitt sér skapað sér skatttekjur. Skatttekjur verða til með vinnu fólks, hugviti, fjárfestingu og rekstri fyrirtækja um allt land. Hlutverk ríkisins er að skapa umhverfi þar sem íslenskt samfélag getur blómstrað. Stöðugleiki, fyrirsjáanleiki og traust eru þar lykilatriði. Fjármálaáætlun sem ýtir undir óvissu eða vekur efasemdir um ráðdeild ríkisins vinnur gegn þessu hlutverki. Fjármálaáætlun sem styrkir hins vegar trú á stöðugleika, aga og raunhæfa sýn styður við atvinnulífið, heimilin og samfélagið allt.

Frú forseti. Ég sé að ég næ ekki að klára þessa ræðu. Það er eitthvað eftir. Ég vil hins vegar benda á mikilvægi þess, og það er bara mín persónulega skoðun, að svona umræða um fjármálaáætlun, að gefa þingmönnum tíu mínútur og fjárlaganefndarmönnum tíu mínútur til að ræða svona stórt mál, er náttúrlega ekki í lagi. Hér eiga bara að gilda sömu reglur og við umræður um fjárlög, tvöfaldur tími, þannig að í umræðum um fjárlög og fjármálaáætlun ættu 20 mínútur að vera að lágmarki til slíkrar umræðu. — Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.