157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og stutta svarið er: Já, ég held að hún hefði getað litið allt öðruvísi út. Það sorglegasta við þetta allt er að mér finnst þetta svo glatað tækifæri. Við hefðum getað verið komin á svo góðan stað núna af því að þetta er svo heimatilbúinn vandi. Við vorum komin í lækkunarferli þegar ríkisstjórnin ákveður að halda áfram með hvert frumvarpið á fætur öðru sem hækkar gjöld og hækkar skatta og það var varað við eins og hv. þingmaður benti á. Þetta átti ekki að koma neinum á óvart. Það var búið að vara við þessu öllu. Þannig að: Já, klárlega. Því miður glötuð tækifæri og það hefði verið gaman að sjá þá fjármálaáætlun.