fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir prýðisandsvar. Heilbrigðismálin eru að vaxa og eiginlega allir stóru málaflokkarnir eru að vaxa. Mitt mat er að það sé algjört neyðarástand í menntamálum á Íslandi. Það er greinilega ekki mat annarra þrátt fyrir að við séum að taka tækifæri af börnum hægri vinstri þegar þau útskrifast úr grunnskóla án þess að vera með grunnfærni í lesskilningi. Ég lít þannig á að þau fái ekki jöfn tækifæri eftir það þannig að ég lít á það sem forgangsmál að vinna í þeim málaflokki. Ég myndi vilja að það gengi það sama yfir alla, að það yrði niðurskurður eða aðhald á öllum í öllum málaflokkum jafnt. Þá myndum við geta greitt niður lán og borgað minni vexti. Ég veit ekki hvort það svarar hv. þingmanni en ég er bara heiðarlegur í því svari. Ég sé menntamálin sem algjöran grunn að lýðræðinu og verðmætasköpun til framtíðar þó að það raungerist á löngum tíma. Ég get horft alveg til 50 ára frekar en bara fjögurra ára. Síðan með STEM-greinarnar þá er ég algerlega sammála því að þær eigi að vera þarna inni en þetta ber ákveðinn vott um einhvers konar óðagot vegna þess að við verðum að byrja í grunn- og leikskólunum og það er ekkert rætt um STEM-greinarnar þar, það er ekki talað um kennara sem geta kennt það þar, það er ekkert gert þar og við erum bara með 2% nemenda, 2% í efsta flokki PISA í náttúruvísindum, sem eru STEM-greinarnar, 2% á meðan það er þrisvar til fjórum sinnum hærra í löndunum í kringum okkur. Já, þetta er því fallegt á blaði, ég styð það en ef maður byrjar að byggja „penthouse“-íbúð þegar grunnurinn er ekki til finnst mér það bera vott um skort á ákveðinni jarðtengingu.