fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir annað ágætis andsvar við ræðu minni. Ég held að við séum sammála um það, hv. þingmaður og ég, að við viljum börnunum allt hið besta. Hvort það sé beintenging milli fjárframlaga og árangurs, það er ekki beintenging þar að mínu mati. Ég sé það bara í mínu starfi að það er ekki þannig og það hefur sýnt sig í ákveðnum rannsóknum. En það er bara forgangsröðun sem er í þessu. Við erum að tala um að menntakerfið og menningin eru bara skorin niður allhressilega eða sett bara á núll á meðan aðrir málaflokkar vaxa. Það eru þessi skilaboð út í samfélagið sem ég er að gagnrýna. Ég gagnrýni að það komi ekkert um það að við erum — ég hef nefnt þessar tölur og stór hluti hagvaxtar hverrar þjóðar byggir á menntun — við erum nánast botnfrosin í lesskilningi á Íslandi og fallið hjá okkur, Bretar eru algjörlega brjálaðir með 20% nemenda sem eru ekki með grunnfærni í lesskilningi en við erum með 40% nemenda. Það væri allt vitlaust í bresku samfélagi eða á Norðurlöndunum ef staðan væri þannig þar. En hér á Íslandi heyrist ekki múkk. Það heyrist varla múkk, ég ætla kannski ekki að segja alveg, en það er ofboðslega lítið talað um þetta. Mér finnst ég stundum vera bara með lognið í fangið, ekki einu sinni storminn þegar ég er að ræða þessi mál og þess vegna vil ég bara þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir að koma í andsvar við mig í þessu því það eykur þá alla vega tímann sem þessi mál fá hér í umræðu og í ræðupúlti. Ég hvet hana til þess að vera með mér í liði í því að taka þennan málaflokk og lyfta honum upp.
Ég verð að nefna það hér að það er búið að ræða í Silfrinu í u.þ.b. 96 mínútur um alls konar mál í borginni, menntamál hafa fengið kannski tvær mínútur en eru einn stærsti útgjaldaliður hvers sveitarfélags.