fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir að svara ekki spurningu minni en ég ætla þá að svara henni fyrir hana. Það var ákvörðun síðustu ríkisstjórnar að gera verulegar breytingar á örorkubótakerfinu sem komu til framkvæmda 1. september á síðasta ári og það er nákvæmlega sú breyting sem hv. þingmaður notar sem rökstuðning fyrir göllum á núgildandi fjármálaáætlun sem inniheldur engar slíkar breytingar.
Hv. þingmaður gerði einnig að umtalsefni forsendur fjármálaáætlunar sem eru nákvæmlega þær sömu og hafa verið í fyrri fjármálaáætlunum. Það væri áhugavert að fá einhverja hugmynd um hvers vegna þær aðferðir sem notaðar voru þá duga ekki núna, en ég ætla að spara það og spyrja frekar beint: Hverjar væru afleiðingar þeirra aðgerða sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt til á aðhaldsstig fjármálaáætlunar sem er sögulega hátt í þessari fjármálaáætlun?