fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með þeirri umræðu sem hefur átt sér stað í dag. Ég hef tekið sérstaklega eftir því að hv. þm. Sigurjón Þórðarson hefur beðið eftir því að við fögnum því að hér sé komin fram fjármálaáætlun og ég held að það sé svo sem enginn að syrgja það að áætlunin sé komin fram þó að menn séu ekki með nein sérstök fagnaðarlæti svo sem yfir því að áætlunin sé komin og innihald hennar eftir því. En ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það er alltaf tilhlökkunarefni og jákvætt fyrir þingið að taka svona mikilvægt plagg hér til umfjöllunar.
Mig langar í þessari stuttu ræðu sem hér er að fara stuttlega inn á heildarmyndina ef við getum horft á það þannig og hvernig við sjáum fyrir okkur framtíðina. Vissulega er þetta áætlun sem hér um ræðir og það er alltaf jákvætt að við erum að horfa fram á áætlun sem gerir ráð fyrir hallalausum fjárlögum til ársins 2031 og eiga að vera hallalaus fjárlög á næsta ári. En þegar við rýnum í áætlunina þá dylst það engum að til að ná fram þeim tekjuauka til að takast á við þau auknu útgjöld sem eru fyrirhuguð á næstu árum þá er alveg óumdeilt að hér er verið að tala um hækkanir á gjöldum, þ.e. skattahækkanir. Nýjasta útspilið er t.d. það sem snýr að breytingu á virðisaukaskatti hjá baðlónum. Hún hefur verið töluvert hér til umfjöllunar. Sömuleiðis erum við að horfa á hækkun á tryggingagjaldi, sömuleiðis á því gjaldi sem ég er nú vanur að borga sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. En vissulega er tekið hér til ákveðinna hluta til að ná endum saman og skila hallalausum fjárlögum. Það er skiljanlegt hjá þeim sem leggja áætlunina fram en vissulega hefur það komið fram í umræðunni sömuleiðis að markmiðið er, held ég, hjá flestum það sama, þ.e. flestir vilja að við séum með hallalaus fjárlög. En hvaða leið er farin að markmiðinu, þar greinir okkur á. Mér finnst skorta í þessari áætlun allverulega á að taka mið af því sem er að gerast í kringum okkur. Það geisar stríð ekki svo langt frá okkur. Það er búið að vera stríð í langan tíma í Úkraínu. Það er styrjöld við Íran sem hefur veruleg áhrif á hækkun á eldsneyti og þegar eldsneyti hækkar í verði þá hefur það keðjuverkandi áhrif.
Það er alveg ljóst t.d. ef við horfum á þann kafla sem snýr að landbúnaði í þessari áætlun þá sjá það allir sem lesa þar á milli línanna að það er dregið úr fjármunum til landbúnaðar í þessari áætlun. Við þekkjum það sömuleiðis, bæði þegar var verið að eiga við Covid og sömuleiðis þegar stríðið braust út í Úkraínu að þá kom ríkissjóður á móts við t.d. bændur varðandi kaup á áburði. Við getum horft á það þannig núna að það er alveg ljóst að sennilega sleppa bændur hér á landi og víða í heiminum nokkurn veginn fyrir horn varðandi mikla hækkun á aðföngum, sérstaklega hvað varðar áburðarkaup þetta árið, en á næsta ári getum við séð framan í alveg gjörbreyttan heim. Það er held ég alveg kristaltært. Það er t.d. með þetta atriði ekki verið að gera ráð fyrir einhverjum hugsanlegum frávikum frá þeirri áætlun sem lagt er upp með. Vissulega er boðaður afgangur. Hann er 1 milljarður. Það er þó alla vega afgangur en það eru ekki stórkostlegar tölur. Bara hækkun á áburðarverði, bara hækkun á eldsneytisverði hefur veruleg áhrif. Sú litla útrétta hjálparhönd ríkisstjórnarinnar til almennings nú á dögunum sem sneri að breytingu á virðisaukaskatti á eldsneyti, þ.e. verði á dælu, kostar einhverja 3–4 milljarða á ári. Við sjáum það að þegar það eru boðuð hallalaus fjárlög árið 2027 þá er verið að tala um 1 milljarð í afgang, þannig að það má ekki mikið út af bera og þegar við erum að tala um gríðarlegar hækkanir á aðföngum og áburði, þá hefur það klárlega áhrif á matvælaverð. Það hefur ekki bara áhrif á matvælaverð innan lands, þetta hefur áhrif á matvælaverð alls staðar í heiminum. Og hvernig ætlum við að bregðast við því? Er komið inn á það í þessari áætlun? Nei.
Sömuleiðis hafa samgöngubætur verið hér töluvert mikið í umræðu og það er vel. Það er vel að horft sé til þess að það eigi að fylla í holur og endurnýja vegi. Það hefur verið mikið í umræðunni að hið óstofnaða innviðafélag eigi nú held ég að grípa flestar framkvæmdir. Alla vega er orðræðan sú en við vitum það alveg að í þessari áætlun er hvergi getið um fjármuni til innviðafélags, ekki neitt. Vissulega liggur fyrir þinginu frumvarp vegna innviðafélagsins og þar eiga að koma inn eignir í félagið en við gerum okkur líka grein fyrir því að innviðafélagið sem slíkt kemur ekki til með að standa að framkvæmdum fyrir utan svæðið frá Hvítá til Hvítár. Við skulum alveg vera raunsæ. Ég sé það ekki gerast að félag sem á að geta rekið sig á veggjöldum, t.d. ef við horfum á veginn yfir Öxi — það liggur alveg fyrir, við vitum alveg að það er ekki að fara í gang. Innviðafélagið er því gott og gilt en við skulum þá bara tala um staðreyndir og hverju það getur þjónað. Vissulega er þörf á samgöngubótum víða um landið, innviðafélagið er einn hluti af því og þáttur í þeirri uppbyggingu en þegar rýnt er í þá þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir um fjármálaáætlun þegar kemur að samgöngumálum þá eru ekki neinar stórkostlegar hækkanir fram undan til ársins 2031. Vissulega voru hækkanir á þessu ári og síðasta ári, svo að ég sé alveg sanngjarn í umræðunni, en við skulum líka hafa það á hreinu að þó svo að hið óstofnaða innviðafélag geti gert góða hluti fyrir okkur þá er það ekki að fara að bjarga og laga vegi í Norðausturkjördæmi, Norðvesturkjördæmi eða í austurhluta Suðurkjördæmis. Ég held að það sé alveg ljóst.
Frú forseti. Það er alveg ljóst að það er margt jákvætt og gott í fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar en það er líka sömuleiðis margt sem má gagnrýna. Fjárlaganefnd bíður mikið verkefni að fara í gegnum þessa þingsályktunartillögu en það er mjög mikilvægt fyrir okkur hér í þinginu að sú vinna gangi vel og að þing sé upplýst um það hvað fram undan er, það er mjög mikilvægt.