fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Mig langar til að þakka fyrir málefnalega og góða ræðu og vildi aðeins eiga orðastað við þingmanninn um frumvarp um innviðafélag og hvert þetta heildarsamhengi er. Það er alveg rétt athugað hjá honum að til þess að vera í C-hluta ríkisins þarf innviðafélagið að hafa ákveðið sjálfstæði og að meginuppistöðu til alla vega, sumir myndu kannski segja algerlega, þurfa verkefnin að standa undir sér, alla vega yfir 50% eins og er lagt upp með og þar þarf auðvitað að vera umferð. Ég held hins vegar að það þurfi aðeins að hugsa það betur þegar sagt er að það muni ekki nýtast hinum dreifðu byggðum. Hugsunin er sú að innviðafélagið létti undir með ákveðnum framkvæmdum einmitt til þess að rýma fyrir framkvæmdum sem eru þó utan þessara svæða og væru bara með hefðbundnum hætti á samgönguáætlun. Síðan þurfum við þá að lenda einhverjum sameiginlegum skilningi á því hvað er sanngjarnt að greiða í veggjöld, af því að þetta kallar jú á veggjöld, hvort hinar dreifðu byggðir eigi að vera alveg undanskildar eða hvort það sé ekki sanngirnismál að það dreifist líka að einhverju leyti í tengslum við nýframkvæmdir þar. Í mínum huga er innviðafélagið mjög áhugavert til að ná þremur markmiðum; að flýta, framkvæma og fjármagna stórverkefni sem létta á samgönguáætlun til þess að hægt sé að fara af meiri krafti í verkefni um land allt, líka í hinum dreifðu byggðum. Um þessa heildarmynd þurfum við að ná sameiginlegum skilningi því að minn draumur er sá að við getum náð býsna breiðri sátt um þetta ef allir landsmenn geta treyst því að þetta sé tæki til að fara í samgönguátak sem nýtist öllu landinu.