fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka sömuleiðis hv. þingmanni kærlega fyrir sitt seinna andsvar. Það er alveg ljóst að í vinnu þingsins sem snýr að fjármálaáætlun og sömuleiðis að samgönguáætlun er mjög mikilvægt í þessu samhengi að þessar áætlanir tali hvor við aðra. Mér hefur fundist innviðafélaginu verið svolítið fleygt fram hér í umræðu þegar í sjálfu sér maður sér fram á að það skortir fjármuni til ákveðinna verkefna. Það liggur fyrir áætlun um að það eigi að fara í hin og þessi verkefni og þá er mjög mikilvægt að þessar áætlanir tali saman. Innviðafélagið er góð hugmynd. Ég er alveg klár á því og sammála hv. þingmanni hvað það varðar en við þurfum þá að vega og meta þær framkvæmdir sem þarf að fara í, hvort sem það er hér þar sem umferðin og 80% af fólkinu býr og umferðin eftir því eða hvort við erum t.d. að velta fyrir okkur endurbótum á 7 km kafla á Brekknaheiði. Þar erum við að tala bara um tvennt ólíkt, en kílómetrinn sjálfur í uppbyggingu kostar alveg það sama. Þá þurfa þessar áætlanir að tala saman og ég er alveg klár á því að innviðafélagið getur komið sterkt inn hvað það varðar. Síðan þurfum við sömuleiðis að velta fyrir okkur jarðgangamálum. Það er nú efni í enn lengri umræðu og ekki gert á þeim 15 sekúndum sem ég á eftir af mínum ræðutíma því það er akkúrat það sem þarf að koma fram í áætluninni. Ef menn ætla að rjúfa kyrrstöðu í gangagerð þá stendur það alla vega ekki í þessari fjármálaáætlun.