fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Við ræðum hérna um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Það er alltaf gaman og áhugavert að fylgjast með umræðu bæði um fjárlög og fjármálaáætlun og efnahagsmál í víðu samhengi hér á Íslandi. Í fjármálaáætlun erum við að reyna að hugsa aðeins lengra fram í tímann en við gerum í fjárlögum. Það hefur líka, svo maður komi aðeins inn á það, talsvert mikið verið talað um öll þau gögn sem þurfa að fylgja og eiga að fylgja fjármálaáætlun, annaðhvort samkvæmt lagaboði eða ekki, og verið tekist talsvert á um þetta hér í þingsalnum bæði núna og í fyrra. En ég fagna því mjög að það hafi náðst samtal um að þessi gögn sem kallað hefur verið eftir liggi fyrir í þinglegri meðferð og svo líti menn til þess hvernig verklagið verði til lengri tíma. Þetta er annars vegar spurning um hvað er nauðsynlegt að gera og hvað á að gera laganna vegna en síðan hafa þingmenn talað um að stundum vanti gögn til að glöggva sig betur á málum, einkum og sér í lagi þegar kemur að ákveðnum og sérstökum málefnasviðum. Það eru einmitt tækifæri til að spyrja ráðherra síðar í þessari umræðu um þeirra málefnasvið og svo eftir atvikum í síðari umræðu ef þarf. Þannig að það er mjög gott að það sé búið að leiða það með ákveðnum hætti í jörð.
Við getum öll verið sammála um að það er mjög algeng setning þegar verið er að tala um efnahagsmálin og fjármál ríkisins, sveitarfélaga eða fjárhag einstaklinga, að það séu blikur á lofti í efnahagsmálum. Það er óvissa uppi í efnahagsmálum. Þannig er það auðvitað alltaf á Íslandi og fyrir því eru margar ástæður. Ein er sú að við erum lítið hagkerfi sem reiðir sig mikið á útflutning. Annað er að við erum með gjaldmiðil sem er að mínu mati lítill og veikburða og uppsafnaður ótrúverðugleiki hans í gegnum tíðina gerir að verkum að hér eru verðbólguvæntingar alltaf mjög miklar og það spilar auðvitað að mjög miklu leyti inn í bæði fjárlög og fjármálaáætlun og inn í fjárhag fyrirtækja, heimila og einstaklinga. Þetta kennir hagsagan okkur. Þetta er glíman sem við stöndum frammi fyrir nánast á hverjum einasta degi hér í þessum sal.
Mér finnst full ástæða til að nefna þetta hér vegna þess að minn flokkur nefndi það mjög sérstaklega í kosningabaráttunni að meginmarkmiðið hér á Íslandi væri að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það liggur alveg fyrir að það hlýtur að vera mjög skýrt markmið að gera það, einkum og sér í lagi þegar vaxta- og verðbólguþróun var með þeim hætti sem var í tíð síðustu ríkisstjórnar. Þá er mönnum svolítið tamt að nefna ytri aðstæður. Þá fara menn að vísa í þær ytri áskoranir sem hafa blasað við í hagkerfinu hverju sinni. Menn hafa réttilega nefnt Covid, menn hafa réttilega nefnt jarðhræringar og menn hafa nefnt fall flugfélags. Þetta er auðvitað staðan sem við Íslendingar erum alltaf í. Við erum síðan með til viðbótar stríð í Evrópu sem spilar auðvitað inn í þetta allt saman líka. En þetta eru sömu áskoranir og eru í gangi í dag. Við erum með stríð í Evrópu og það eru átök í Miðausturlöndum og einkum og sér í lagi hefur nástaðan sem er í gangi um Hormússundið gríðarlega mikil áhrif hér á vexti og verðbólgu, efnahagsþróun og allt þar fram eftir götunum. Þannig að mér finnst menn vera svolítið valkvæðir í því að þegar menn eru að tala um liðna tíma þá eru háir vextir og verðbólga alltaf afsprengi einhverra ytri þátta en sleppa því síðan í dag að nefna að við erum auðvitað að glíma við þessa ytri þætti líka í dag. Það eru enn þá jarðhræringar, það eru enn þá stríð og átök í heiminum sem hafa áhrif á þjóðarbúskapinn hér.
Við lögðum auðvitað upp með það í kosningabaráttunni, af því að það hefur svolítið verið vísað til hennar í umræðunni í dag, að það væri forgangsmál að ná niður vöxtum og verðbólgu. Við höfum líka verið mjög skýr með það, og það er nú sérstakt áhugamál hjá mér, að benda á hvað gjaldmiðillinn spilar mikla rullu í þessu, þ.e. að einhverjar breytingar á því er eitthvað sem skilar okkur bættum hag til lengri tíma, langt inn í framtíðina, en lagar auðvitað ekki ástandið eins og það er í dag. Það hefur alltaf verið mjög skýrt.
Ég fagna hins vegar því sem hefur verið gert af þessari ríkisstjórn og reyndar má segja að sumt af því hafi verið í framhaldi af því sem síðasta ríkisstjórn var að einhverju leyti að gera, til að mynda að selja eignir, að klára að selja Íslandsbanka sem byrjaði í tíð fyrri ríkisstjórnar. Það er að mínu mati tæki til að losa um fé til að greiða niður skuldir, sem svo aftur lækkar vaxtabyrði ríkissjóðs, því það er auðvitað alveg sérstaklega erfitt að horfa upp á það hér ár eftir ár að vaxtagjöld íslenska ríkisins séu um 100 milljarðar á ári. Þetta eru peningar sem fara þá ekki í velferð. Þetta eru peningar sem nýtast ekki í heilbrigðiskerfinu. Þeir nýtast ekki í samgöngum, af því að það er búið að tala svolítið mikið um samgöngur í þessari umræðu, og þessir fjármunir ná ekki að vinna með réttum hætti fyrir heimili og fyrirtæki. Þannig er það auðvitað.
Menn hafa svolítið verið að vísa til umsagnar fjármálaráðs sem liggur fyrir og það er eðlilegt að menn geri það. Það er umsögn sem er beinlínis ætlað að veita ríkisfjármálunum ákveðið aðhald. Það er beinlínis tilgangurinn að þar eigi að rýna til gagns. Menn hafa svolítið valið sér staðina til að taka dæmi þar. En ég bendi kannski einna helst á og vil vitna orðrétt, með leyfi forseta, til þess sem stendur þar:
„Fjármálaráð fagnar því að þrátt fyrir að efnahagsforsendur hafi versnað frá því að síðasta fjármálaáætlun var lögð fram sé enn stefnt að hallalausum fjárlögum árið 2027.“
Þetta er og hefur verið lykilatriði og leiðarstef í því sem þessi ríkisstjórn stendur fyrir. Og hvers vegna er það? Það er vegna þess að við erum að glíma við vexti og verðbólgu og það sterkasta sem ríkisvaldið getur gert til að vinna með Seðlabankanum og hlutverki Seðlabankans er nákvæmlega það að ríkisfjármálin og ríkið séu ekki að auka umsvif og þenslu í hagkerfinu á meðan Seðlabankinn er akkúrat að fara í hina áttina. Þess vegna verð ég að segja að þó að ég sé almennt mjög hrifinn af því að menn tali um að hér hljótum við að vilja lækka álögur og gjöld og skatta þá snýst hagstjórn líka svolítið mikið um tímasetningar. Ég velti því fyrir mér hvort mönnum finnist það sniðugt eins og nú árar á meðan Seðlabankinn er að bregðast við verðbólgu með því að hækka vexti, með því að draga úr fjármunum sem fólk hefur til umráða, að ríkisvaldið, akkúrat á meðan þetta er í gangi, geri hið gagnstæða. Þarna þurfa menn að velja sér góðar tímasetningar. En auðvitað er það markmiðið, bæði með þessari fjármálaáætlun og til lengri tíma í fjárlagagerð framtíðarinnar, að hér verði lækkuð gjöld og lækkaðar álögur á fólk. Þá langar mig að minna enn og aftur á það að stærsta og besta og mesta kjarabót, ekki bara einstaklinga, ekki bara heimila eða fyrirtækja heldur líka ríkissjóðs og sveitarfélaga, er að ná niður vaxtastigi í landinu til lengri tíma. Ég ætla að árétta þetta: Til lengri tíma. Þó að það sé hægt að ná verðbólgunni niður í verðbólgumarkmið eða þar um bil í skamman tíma í íslensku efnahagsumhverfi þá er það ekki það sem hjálpar endilega heimilum, fyrirtækjum eða ríkissjóði. Við þurfum að ná einhverjum langtímastöðugleika og mér finnst að þessi fjármálaáætlun ýti svolítið undir það. Við erum auðvitað að vinna í hagkerfi sem er með íslensku krónuna sem að mínu mati ýtir mjög mikið undir að það sé óstöðugleiki hér, verðbólguvæntingar almennt miklar og tiltrú almennings, fyrirtækja og allra þarna úti á því að hér myndist einhver stöðugleiki til lengri tíma er ekki mikil. Mér finnst þetta vera efnahagsvandi og hagsagan hér á Íslandi svolítið í hnotskurn.
Að þessu sögðu langar mig líka að draga það sérstaklega fram að ég fagna því mjög í þessari fjármálaáætlun — af því að ég hef talað mjög mikið um einn afmarkaðan þátt heilbrigðis- og velferðarútgjalda sem eru framlög til fólks sem glímir við fíknisjúkdóm — að það er verið að gera tímabundnar ráðstafanir þar varanlegar. (Forseti hringir.) Þetta skiptir gríðarlegu máli af því að þetta eru ekki bara heilbrigðis- og velferðarmál, þetta er líka gríðarlega stórt efnahagsmál vegna þess að kostnaðurinn af því að gera það ekki lekur inn í allt. (Forseti hringir.) Hann lekur inn í meiri kostnað í heilbrigðiskerfinu, lekur inn í meiri kostnað í öllu velferðarkerfinu, í fangelsiskerfinu og þar fram eftir götunum. Þannig að ég fagna því alveg sérstaklega á þessum stutta tíma sem ég hef hér til umráða.