fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Auðvitað er það þannig að þegar þessi ríkisstjórn tók við er hún auðvitað að taka við uppsöfnuðum hallarekstri hér til margra ára. Við erum líka að taka við þegar vextir og verðbólga eru búin að vera hér uppi í rjáfri ansi lengi. Það er auðvitað ekkert skrýtið að það liti umræðuna. Auðvitað má færa rök fyrir því að einhverjar breytingar, mögulega á gjöldum og öðru, hafi áhrif á verðbólgu. Við vorum algjörlega skýr á því í kosningabaráttunni, og við erum algjörlega skýr á því almennt þar sem við tölum, að við hræðumst ekki að taka erfiðar ákvarðanir. Þess vegna erum við t.d. ekki að hvika frá því verkefni að skila hallalausum fjárlögum ári fyrr heldur en síðasta ríkisstjórn ætlaði að gera. Það getur kostað ákveðnar fórnir eða tilfærslur sem er örugglega vel hægt að rökstyðja hér í ræðustól að vinni gegn einhverjum öðrum orðum sem féllu á einhverjum öðrum tíma. En þetta er auðvitað bara samfellt verkefni að fást við efnahagsmálin. Þegar menn standa frammi fyrir því — menn eru að tala um að hér séu engar sérstakar ytri aðstæður. Ég nefni nú bara það sem kemur fram hjá fjármálaráði, af því að stjórnarandstaðan hefur mikið vísað í það sem kemur fram í því plaggi, að þar er nákvæmlega talað um það að allar forsendur sem við þurfum að byggja á til framtíðar byggi á nákvæmlega þessari óvissu sem er núna og hefur verið að byggjast upp hér á síðustu misserum. Það er bara staða og verkefni sem hver einasta ríkisstjórn stendur í á hverjum einasta tíma. Við vorum alltaf mjög skýr á því. Við tökum erfiðar ákvarðanir ef við þurfum að gera það. Ef það getur þýtt á einhverjum tímapunkti að það þurfi að fara í einhverjar aðgerðir, (Forseti hringir.) eins og kílómetragjaldið eða vörugjöldin til að mynda, til að ná áfram meginmarkmiðinu um hallalaus fjárlög, til þess að vinna með Seðlabankanum sem er að róa í ákveðna átt og vera ekki að vinna á móti, þá skorumst við ekkert undan því.