157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:27]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir sitt andsvar. Það er þá alveg skýrt að Viðreisn, eða ég skildi ekki betur því að það vantaði ekki að hv. þingmaður væri mjög heiðarlegur í sínum svörum, sem rak mjög öfluga kosningabaráttu og vildi hafa mikla stjórn á vöxtum og verðbólgu til þess að passa upp á efnahagsmálin, hvikar ekki frá því að hækka skatta ef til þess þarf. Þá alla vega vitum við það. Þetta er ekki mikill tími hér í seinni umferðinni þannig að mig langaði að koma með eina létta spurningu undir lokin fyrir hv. þingmann um það sem er honum auðvitað mjög hugleikið og er krónan. Ég væri til í að fá að heyra á þeim 60 sekúndum sem hann hefur á móti mér, að mati hv. þingmanns: Hvernig ýtir krónan undir óstöðugleika verandi einn stöðugasti gjaldmiðill hins vestræna heims undanfarinn áratug? Ég væri mjög til í að heyra það.