157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:28]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Nú er það auðvitað þannig að þegar menn stilla íslensku krónunni upp sem stöðugasta gjaldmiðli veraldar þá verð ég eiginlega að fá að brosa aðeins í kampinn. Við erum með gríðarlega dýran, stóran og kostnaðarsaman gjaldeyrisvaraforða sem er nákvæmlega til þess að verjast þeim sveiflum sem krónan veldur. Það er kostnaðarsamt. Ég átta mig á því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf talað um þetta sem einhvern sérstakan kost og einhverja sérstaka gæfu okkar Íslendinga að vera með þennan stórkostlega gjaldmiðil. Ég er bara ekki sammála því og held að hagsagan, ef við skoðum hana, sýni okkur það bara nákvæmlega. Það að gjaldmiðlinum sé haldið stöðugum til skemmri tíma kostar ansi mikið. Ég held, af því að við erum náttúrlega núna á næstu misserum að fara svolítið í umræðu um Evrópusambandið og þar af leiðandi gjaldmiðilinn og efnahagsmálin, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins mættu vera pínulítið krítískir á það að þegar þeir tala um að krónan sé tæki til þess (Forseti hringir.) að bregðast við hagsveiflum þá eru það yfirleitt vondar hagsveiflur sem krónan sjálf veldur.