fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir hans ræðu um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Nú koma svolítið blikur á loft í efnahagsmálum. Hér hefur ekki mátt viðurkenna það í þessari umræðu eða á síðustu misserum, það er einhvern veginn alveg útilokað. Ræður hér hafa snúist satt að segja mikið um það að hér hafi bara ekkert gerst frá 2019; fall WOW air, heimsfaraldurinn, 2020–2021, stríðið í Úkraínu, Reykjaneseldar. Nú er farið að tala um það sem er að gerast í Íran og Persaflóa. Þá held ég að sé mjög mikilvægt að við fáum gögn og annað, hvaða tölur geta legið á bak við það sem þar er um að vera. Ég hef ekki trú á að þær tölur séu að verða með neinum sambærilegum hætti, ekki neinum, og þau áföll sem hafa gengið yfir íslenskt samfélag á undanförnum árum. Ekki neinum. Þetta er áhugavert og búið að vera áhugavert í dag þar sem varla hefur mátt minnast á það hvað hefur gengið yfir á undanförnum árum. Sá sem hér stendur hefur bent á að á tímabilinu 2014–2018, 2019, um fimm til sex ára skeið, var meðalverðbólga á Íslandi 2,4%. Hún var 2,4% yfir það tímabil þangað til að þessar hamfarir gengu yfir landið efnahagslega. Þessi áföll samtals, sem hafa gengið yfir íslenskt samfélag á undanförnum árum, eru það sem gengur næst efnahagshruninu og því sem fylgdi í íslensku samfélagi.
Ég ætla aðeins að koma inn á hagstjórn og tímasetningar og svo launaþróun ríkisins og ræða síðan aðeins um vaxtastigið og stýrivaxtalækkun. Þar fékk ríkisstjórnin mjög góðan arf til að byggja á þegar vaxtalækkunarferlið var hafið fyrir kosningar. (Forseti hringir.) En nú er það að fara á verri veg eins og við þekkjum, bæði með verðbólgu og stýrivexti eða meginvexti Seðlabankans.