157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson þurfi ekki að fletta lengi upp í mínum ræðum hér í þessum þingsal eða lesa þær greinar sem ég hef skrifað eða það sem ég hef almennt sagt um krónuna og efnahagsvandann sem blasir við okkur Íslendingum. Ég kom aðeins inn á þetta í ræðunni. Við erum alltaf pínulítið fámennt eyríki í risastórum heimi. Það er mjög óskynsamlegt að vera með lítinn gjaldmiðil sem nýtur einskis trausts í alþjóðasamhenginu við þær aðstæður. Við erum alltaf að kljást við annaðhvort heimagerð áföll eða utanaðkomandi áföll. Ég ætla ekkert að gera lítið úr því, það voru auðvitað heljarinnar verkefni sem síðasta ríkisstjórn fékk í fangið, Reykjaneseldar, fall flugfélags. Þetta eru auðvitað verkefni sem núverandi ríkisstjórn fékk líka í fangið, það hefur fallið flugfélag og það eru enn þá Reykjaneseldar og útgjöld út af því og það er ekki enn þá búið. Við fórum í miklar aðgerðir á Íslandi út af Covid og það var farið auðvitað í aðgerðir á heimsvísu út af því. En það eru náttúrlega mjög mörg rök sem hníga að því að þær aðgerðir hafi verið of umfangsmiklar, staðið of lengi.

Við verðum að geta horft á það að þróun verðbólgu og vaxta, þegar við berum hana saman við nágrannalöndin, var með allt öðrum hætti hér en í nágrannalöndunum. Ofur einfaldlega er það þannig að vextir og verðbólga hanga lengur í háum tölum hér. Það var veruleikinn sem blasti við okkur síðast. Síðan eru auðvitað alltaf einhverjar ytri aðstæður, t.d. í formi stríðsátaka. Það liggur alveg fyrir í umsögn fjármálaráðs að þetta er áskorunin núna. Þetta hefur mikil áhrif núna. Þess vegna er m.a. verið að grípa til ákveðinna tímabundinna ráðstafana varðandi eldsneyti eins og við ræddum hér mikið í þinginu í gær. En samandregið er það alltaf þannig (Forseti hringir.) að þessir kostir sem menn tala um þegar þeir tala um gjaldmiðilinn eru hins vegar nákvæmlega uppspretta verðbólgutalna og vaxtatalna sem einkenna íslenska hagsögu. (Forseti hringir.) Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið á efnahagsmálum mjög lengi í íslensku samfélagi. (Forseti hringir.) Efnahagsráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru ekki svona lélegir. Það er einhver kerfisvandi sem hefur gert þeim erfitt fyrir. (Forseti hringir.)Ég er bara svolítið í ræðu eftir ræðu að reyna að sýkna Sjálfstæðisflokkinn og benda á að ábyrgðin geti verið einhvers staðar annars staðar, (Forseti hringir.) en Sjálfstæðisflokkurinn vill endilega halda ábyrgðinni hjá sér og það er þá bara þeirra mál.

(Forseti (ÞSv): Forseti verður að biðja hv. þingmenn að virða ræðutímann.)