fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þetta. Já, ég hef óbilandi trú á íslensku samfélagi. Ég hef óbilandi trú á okkur hér sem sitjum í þessum sal og öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem vinna gagn í þágu samfélagsins. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður nefnir, blessunarlega hefur stoðunum undir íslenskum efnahag fjölgað. Hann nefndi t.d. bara ágætlega hér að okkar frábæri sjávarútvegur skilar enn þá gríðarlega miklu en stoðirnar eru orðnar fleiri og þar af leiðandi dreifist auðvitað ábyrgðin, ef við getum sagt sem svo. Ég hef aldrei haldið því fram að við séum að leysa öll heimsins vandamál með því að ganga í Evrópusambandið eða taka upp annan gjaldmiðil en annar gjaldmiðill og Evrópusambandið hjálpar okkur að því markmiði að koma á stöðugri efnahag. Það leysir okkur ekki undan þeirri skyldu hér í þessum sal að vinna áfram á hverjum einasta degi að því að fjármál ríkisins séu í góðu horfi. Það leysir okkur ekki undan þeirri skyldu að semja með skynsemina að leiðarljósi þegar verið er að semja um kaup og kjör (Forseti hringir.) og það leysir okkur ekki undan þeirri skyldu að stýra samfélaginu með tilliti til efnahagsmála út frá þeim forsendum og þeim ytri aðstæðum sem myndast hverju sinni. (Forseti hringir.) Þetta er leið að markmiði en ekki markmið í sjálfu sér. En gjaldmiðillinn hefur í hagsögunni verið meinsemd í íslensku samfélagi.