157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:38]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hv. þingmaður nefndi að það hefði verið eitt af helstu stefnumálum hans flokks í aðdraganda kosninga að ná niður vöxtum og verðbólgu. Ég minnist þess reyndar líka að formaður flokks hv. þingmanns, Viðreisnar, hafi lýst því yfir þegar þessi ríkisstjórn var mynduð að það ætti ekki að hækka skatta. Mig langar einfaldlega að spyrja hv. þingmann: Hvernig gengur? Hvernig gengur að ná þessum markmiðum? Hvernig gengur að ná niður vöxtum og verðbólgu og hvernig gengur að hækka ekki skatta?