157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:39]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir þetta. Ég kom aðeins inn á þetta í andsvari fyrr í þessari umræðu. Við tókum það skýrt fram og gerum það alltaf og höfum gert það í allri okkar framsetningu til almennings þegar við erum að bjóða okkur fram, hvort sem er til sveitarstjórna eða til þings, að við skorumst ekkert undan því að taka erfiðar ákvarðanir. Ég hygg að ég og hv. þingmaður séum sammála um það að stundum þarf að bregðast við aðstæðum sem stundum eru afleiðingar af heimatilbúnum vanda en stundum eru það ytri aðstæður sem að einhverju leyti ráða för. Mér finnst það talsvert mikil vonbrigði að það skuli ekki ganga hraðar að ná niður verðbólgu og vöxtum. Mér fannst raunverulega erfitt að sjá það þegar vextir hækkuðu síðast og ég átta mig alveg á því að við þurfum að snúa við væntingum því það eru verðbólguvæntingarnar sem að svo miklu leyti stýra þessu eins og fram hefur komið. Auðvitað þarf þá stundum að grípa til einhverra tímabundinna ráðstafana, ég þykist nú vita að hv. þingmaður sé kannski að vísa í vörugjöld eða kílómetragjöld. Sumt af því er auðvitað arfur frá fyrri ríkisstjórn og þeim flokkum sem þá voru til að gera ákveðnar breytingar á þeim tekjum sem þurfa að koma af samgöngum til að hægt sé að halda áfram að byggja upp vegakerfi og annað í þeim dúr. Þetta hangir auðvitað svolítið saman, þ.e. það þarf að bregðast við í ríkisfjármálunum með ábyrgum hætti. En það sem við erum auðvitað að gera með þessu, líka það sem hv. þingmaður er að vísa í hér fyrir síðustu áramót, er að hvika ekki frá þeirri stefnu að skila hallalausum fjárlögum, að vinna með Seðlabankanum en róa ekki á móti.

Ég hlýt nú að rukka hv. þingmann um afstöðu hans til þess: Er það skynsamlegt að Seðlabankinn, sem hefur auðvitað miklu hlutverki að gegna þegar kemur að verðbólgu og vöxtum, (Forseti hringir.) eigi að vera á einni vegferð á meðan ríkisvaldið er á annarri? Síðan þurfa auðvitað aðilar á markaði að semja um kaup og kjör. (Forseti hringir.) Auðvitað þarf þetta allt saman að vinna saman og það getur kallað á einhverjar breytingar en undan því að taka erfiðar ákvarðanir víkjumst við ekki.