157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:42]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það var ekkert skýrt svar um hvernig gengi en ég get auðvitað gefið mér að það gangi ekki neitt. Eins og hv. þingmaður sagði er sorglegt að horfa á það að vaxtalækkunarferli Seðlabankans hefur verið stöðvað. Það hefur verið stöðvað. Það gengur ekkert að ná niður vöxtum og verðbólgu. Hv. þingmaður kom ekki inn á það að hækka skatta nema hann haldi að það séu bara vörugjöldin og annað. Það er auðvitað eitt af því, en það er meira til. Hér voru hækkaðir skattar á leigutekjur. Hér var samsköttun hjóna tekin þannig að það er búið að gera ýmislegt í því að hækka skatta. Ég vona að þegar hv. þingmaður talar um að taka erfiðar ákvarðanir þá snúist það ekki bara um að svíkja kosningaloforð.

Hv. þingmaður hefur svo sannarlega rétt fyrir sér að það eru auðvitað væntingarnar þarna úti, verðbólguvæntingarnar, sem skipta máli og þá skiptir trúverðugleikinn máli. Því vil ég spyrja hv. þingmann: Hvað finnst honum um þær ábendingar sem koma frá okkar færustu hagfræðingum sem sitja í fjármálaráði? Þar er m.a. sagt að vísitölutenging almannatrygginga ógni sjálfbærni opinberra fjármála (Forseti hringir.) og að verðbólguvæntingar séu enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.