157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:45]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég ætla að leggja nokkur orð í púkkið í þessari fyrri umræðu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Það er eins og það sé sérstök árás í gangi í garð helst alls sem byrjar á b. Það eru baðlón, bankar, bifreiðaeigendur og byggingargeirinn. Ég og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir getum þakkað fyrir að sleppa. (BHar: Er sérstakur skattur á okkur líka?) Það hefur örugglega hvarflað að þeim í fjármálaráðuneytinu og hæstv. ráðherra en ekki verið lagt í það.

En það er auðvitað með miklum ólíkindum að fylgjast með því með hvaða hætti þessi skefjalausa skattasýki brýst út hjá ríkisstjórninni. Ef við lítum aðeins í kafla 3.2.2 á bls. 47 í áætluninni þá er þetta nú allt saman dálítið rammað inn. Byrjum á ökutækjum og eldsneyti. Þar er rammað inn sérstakt markmið um það, eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Er gert ráð fyrir frekari ráðstöfunum á tímabili fjármálaáætlunar svo tekjur af ökutækjum og eldsneyti nái 1,7% af VLF til samræmis við meðaltal áranna 2010–2017.“

Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur að hæstv. fjármálaráðherra noti sem viðmið í þessu samhengi árin eftir bankahrunið með því falli sem varð í framleiðslu hér innan lands á þeim tíma. Það er alveg fyrir neðan allar hellur. En hvað á síðan að gera með þessu 1,7% viðmiði? Þá er horft til þess af þessum skattasjúku stjórnvöldum að festa það viðmið til lengri tíma. Þetta er sama ríkisstjórnin sem síðan í hina röndina segir: Heyrðu, við erum að ná lægra hlutfalli af sköttum, lægra skuldahlutfalli á grundvelli hagvaxtar, á grundvelli aukins umfangs í samfélaginu, en aukið umfang í samfélaginu á samkvæmt þessu markmiði að keyra upp enn meiri gjaldtöku á akstur og ökutæki. Guð forði okkur frá því að eignast hér eitt Novo Nordisk, það yrði dýrt fyrir bifreiðaeigendur ef þyrfti að fylgja 1,7% af þeirri viðbót í aukinni gjaldtöku á akstur og ökutæki. Ég hvet hv. fjárlaganefnd til að líta til með þessu.

Þá eru það bankarnir. Eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Ein af margþættum aðgerðum til þess að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs felst í því að afla viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum …“

Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar virtist hafa misskilið glærusýningu og sagði þessa upphæð 6 milljarða á ári. Það verður enginn sem borgar þessa 6 milljarða nema neytendur. Þessir 6 milljarðar lenda lóðbeint á reikning í heimilisbókhaldi almennings. Ég hvet hæstv. fjármálaráðherra til að úttala sig um það hvað hann sjái fyrir sér hvað þessa hækkun varðar í ljósi þess að ráðherra hefur borið það til baka að talan sé 6 milljarðar.

Baðlónin og ferðaþjónustan. Þar er horft til þess að færa baðlón sérstaklega í hærra virðisaukaskattsþrepið, óskiljanleg ráðstöfun. Þarna fundu menn einhvern geira sem gekk bærilega og þá skal skattleggja sérstaklega. Þetta er bara sama nálgun, öfundarnálgun og byggingargeirinn varð fyrir hér þegar gekk vel í nokkur ár en nú á enn að leggja til atlögu við byggingargeirann, eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Annars vegar verði tekið skref til frekari lækkunar á endurgreiðsluhlutfalli vegna vinnu við íbúðarhúsnæði, en hlutfallið er nú 35%. Hins vegar verði horfið frá þeirri ívilnandi stefnu að skattleggja aðgang að baðlónum í neðra þrepi VSK fremur en almennu þrepi.“

Hér á enn að lækka endurgreiðsluhlutfall fyrir vinnu á verkstað við framleiðslu íbúðarhúsnæðis. Hvað mun þetta gera annað en að hækka byggingarkostnað? Áfram mætti telja. Allt ber þetta að sama marki, að þetta er ekki gott ár til að byrja á b og Framsóknarflokkurinn getur vottað um það.

Í ljósi þess með hvaða hætti umræðan hefur átt sér stað hér í dag og að búið er að réttlæta þessa breytingu á gjaldtöku baðlónanna með því að hér sé um að ræða skattstyrk, eins og það er kallað, skulum við fara örsnöggt í gegnum söguna í þeim efnum. Í lögum um opinber fjármál segir í 3. gr., orðskýringum, með leyfi forseta:

„14. Skattastyrkur: Eftirgjöf á skattkröfu á hendur skattgreiðanda vegna sérstakra aðstæðna eða atvika.“

Lægra virðisaukaskattsþrepið á matvælum og í ferðaþjónustu til að mynda hefur ekkert með þetta að gera. Hugsunin var allt önnur á sínum tíma en að líta á virðisaukaskattsþrepin tvö sem sérstakan skattstyrk, eins og segir hér. Í áliti fjárlaganefndar sem var útbýtt í september 2015 um skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings frá 2013 segir, með leyfi forseta:

„Ríkisendurskoðun beinir því til Alþingis að kanna möguleika á að setja sérstaka löggjöf um skattstyrki þar sem kveðið væri á um markmið skattstyrkja og gildistími væri í öllum tilfellum takmarkaður.“

Í umræddri skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að á árinu 2013 hafi skattstyrkir numið 17,8 milljörðum kr. samanborið við 17,2 milljarða árið 2012. Hver er talan sem er tilgreind í fjárlögum þessa árs fyrir árið 2026? 147? Það er bara verið að tala um allt annan hlut en lögin áttu að ramma inn. Þess vegna er alveg forkastanlegt að fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna tali í þessari umræðu um þessa svokölluðu skattstyrki með þeim hætti sem gert er. Þetta er af sama meiði og svo oft kemur fram. Það er eins og fjármálaráðherra hvers tíma og ríkisstjórnin í þessu tilviki telji ríkið eiga þetta allt saman. Allt sem er ekki skattlagt upp í topp er einhvern veginn eftirgjöf, styrkur. Þetta eru skilaboðin sem eru send.

Við verðum einhvern veginn að komast til baka á þann stað sem var grundvöllur þess að Ríkisendurskoðun hvatti Alþingi til að kanna möguleika á að setja lög um skattstyrki. Þar var sérstaklega kveðið á um að það yrði rammað inn með allt öðrum hætti en nú er fjallað um þetta. allt öðrum hætti. Öll rök er varða það, allar ræður í dag er varða það að rökstyðja þessa hækkun skatta, hvort sem það er á byggingariðnað, baðlón eða hvað sem það kann að vera á grundvelli þess að hér sé um skattstyrki að ræða, vísa ég út í hafsauga af því að þau rök eru beinlínis röng. Þá skiptir engu máli þótt fjármálaráðherrar fyrri ríkisstjórna hafi haldið sömu dellu fram. Grundvöllurinn er allt annar en hér er um rætt. Skýrsla Ríkisendurskoðunar sem var lögð fram í nóvember 2014, ári áður en lögum um opinber fjárlög var dreift í september 2015, er grundvöllur þessa hluta laga um opinber fjármál og við eigum að ræða hlutina eins og þeir eru, eins og uppleggið var, ekki eins og þetta hefur einhvern veginn bjagast og afskræmst í gegnum árin undir þeim formerkjum að ríkið eigi þetta nú allt saman.

Nú hleypur frá manni tíminn. Ég ætlaði að gefa mér smátíma í að fara í gegnum þá raðrassskellingu sem álitsgerð fjármálaráðs er gagnvart þessari fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar en mér gefst tæplega tími til þess. En staðan er nú samt þannig að það er ekki hægt annað en að nefna hér nokkur atriði, bara svona af handahófi, með leyfi forseta:

„Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála. Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu. Fjármálaráð kallar eftir gagnsæi við framkvæmd stöðugleikareglu.“

Við fulltrúa í fjármálaráði verð ég að segja: Farið í röðina því að hér í þinginu erum við að bíða eftir upplýsingum sem eiga að grundvalla þessa umræðu í dag og þær koma um mánaðamótin næstu, þökk sé hæstv. forseta sem steig inn í það mál. Gagnsæi er þeim ekki mjög eðlislægt sem nú stýra fjármálum hins opinbera.

Og áfram segir hér, með leyfi forseta:

„Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika. Óljóst hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni. Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi. Lækkun skuldahlutfalls byggir á bjartsýnum forsendum um hagvöxt.“ — Og svo er það útskýrt og mönnum óar við að lesa.

„Endurlánum fylgir freistnivandi.“ — Er þar vísað í fyrirhugað innviðafélag.

„Mikil og falin áhætta getur verið fólgin í stofnun innviðafélags.“ — Sem er grundvöllur þess að stjórnarliðar tala hér daginn út og inn um það að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð.

Þetta er fjármálaáætlunin sem nú er lögð fram og ekki hægt að segja annað en að fjárlaganefndar bíði flókið verkefni. Ég hvet hv. nefndarmenn til dáða því það er að mörgu að hyggja. En fyrst og fremst skiptir máli að við förum að tala um hlutina eins og þeir eru en ekki eins og menn upplifa þá í einhverjum hliðarveruleika.