157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:56]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Hún fer ekki glæsilega af stað þessi fjármálaáætlun, svo vægt sé til orða tekið, og ég vil fá að vitna hér í nokkrar línur úr umsögn fjármálaráðs. Bara þær umsagnir einar og sér hefðu átt að vera tilefni til þess að hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. ríkisstjórn myndi taka þetta til baka og skoða þetta betur.

Hér segir m.a., með leyfi forseta: „Þetta er lögbundin og sjálfvirk skuldbinding sem nær yfir um 15% af heildarútgjöldum ríkissjóðs sem stjórnvöld munu nú ekki geta vikið frá án þess að breyta lögum.“— Hér er verið að tala um launavísitölutengingu bóta. —„Í ljósi reynslu annarra þjóða sætir það furðu að slíkt kerfi sé tekið upp hér nú.“

Og áfram heldur fjármálaráð:

„Upplýsingar úr skattframtölum benda til þess að yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að kjaragliðnun hafi átt sér stað á milli launa og lífeyris séu ekki á rökum reistar. Kjör ellilífeyrisþega og örorkuþega hafa ekki gliðnað frá kjörum vinnandi fólks, þvert á móti hafa ráðstöfunartekjur þeirra sem þiggja lífeyri eða fulla örorku vaxið hraðar en ráðstöfunartekjur þeirra sem vinna.“

Og ekki skánar það, með leyfi virðulegs forseta:

„Hámark raunvaxtar útgjalda stöðugleikareglu var ákvarðað áður en vísitölutenging almannatrygginga var lögfest. Það útgjaldasvigrúm sem stjórnvöld töldu sig hafa áður en lögin voru samþykkt er ekki lengur til staðar. Fjármálaráð telur að vísitölutenging almannatrygginga sé forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglu til lækkunar.“

Hér er talað um forsendubrest, virðulegur forseti, í umsögn fjármálaráðs og strax er byrjað að svíkja loforðin. Á kynningarfundi um stefnumál ríkisstjórnarinnar sagði hæstv. utanríkisráðherra að það ætti ekki að hækka vask á ferðaþjónustuna í landinu. Síðan átti heldur ekki að hækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki í landinu. Þetta er allt margbrotið en sérstaklega var tekið fram að það ætti ekki að hækka vask á ferðaþjónustu í landinu. Í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun segir, með leyfi virðulegs forseta:

„Skattastyrkir í VSK eru miklir hérlendis en þeir draga úr tekjuskilvirkni skattsins.“

Og þá kemur hér:

„Annars vegar verði tekið skref til frekari lækkunar á endurgreiðsluhlutfalli vegna vinnu við íbúðarhúsnæði, en hlutfallið er nú 35%. Hins vegar verði horfið frá þeirri ívilnandi stefnu að skattleggja aðgang að baðlónum í neðra þrepi VSK fremur en almennu þrepi.“

Hér er strax búið að svíkja loforð sem voru gefin hér fyrir nokkrum mánuðum síðan þegar þessi ríkisstjórn var búin til og soðin saman. Það er strax búið að svíkja gefin loforð. Síðan er því haldið fram að það verði bara útlendingar sem munu borga þetta. Það er nú bara ekki þannig. Bara í Norðausturkjördæmi eru það líklega íslenskir notendur Jarðbaðanna, Skógarbaðanna, baðanna í Vök og Sjóbaðanna sem munu líklega þurfa að taka á sig milli 200 og 300 millj. kr. hækkun á miðaverði með þessum skattbreytingum. Bara Íslendingar. Íslendingar eru 70–80% af gestum þessara lóna yfir vetrartímann. Það er kannski ágætt að minna ríkisstjórnina á að veturinn er ansi langur á Íslandi þannig að það er ansi drjúgur tími sem Íslendingar eru nánast allir gestir þessara baðlóna.

Hér er talað um að það eigi líka að fella niður greiðsluhlutfallið vegna vinnu við íbúðarhúsnæði sem er núna 35%, 35% endurgreiðsla vasks á byggingarstað. Það á að gera það þar sem verið er að byggja íbúðir fyrir fólk sem er að kaupa sér sína séreign en við ætlum samt að halda áfram í fjárlögum að setja 7.500 milljónir í að niðurgreiða félagslegt húsnæði. Niðurgreiðslur frá skattgreiðendum til félagslegs húsnæðis upp á 7,5 milljarða, en það á að fella niður hvata til þess að byggja húsnæði, byggja séreign. En það kemur ekkert á óvart, virðulegur forseti. Við erum með vinstristjórn og vinstristjórnir vilja frekar búa til leigjendur en fólk sem á sitt eigið húsnæði og líta á það sem náttúrulögmál að ríkið þenjist út og að skattar hækki á hverju ári til að borga fyrir óráðsíuna.

Síðan var haldinn hér á dögunum fundur fyrir utan Jysk í Kópavogi þar sem lofað var 16 milljörðum úr ríkissjóði í einhvers konar áætlanir. Hæstv. forsætisráðherra stóð fyrir framan Jysk í Kópavogi ásamt blaðamönnum og 22 öðrum og lofaði 16 milljörðum úr ríkissjóði. Ég veit ekki hvort búið er að gera ráð fyrir þessum 16 milljörðum, Jysk-milljörðunum, frá Samfylkingunni í fjármálaáætluninni. Vissi kannski hæstv. fjármálaráðherra ekkert af þessum milljörðum úr Kópavogi sem Samfylkingin er búin að lofa? Ég bara velti því fyrir mér, virðulegur forseti. Síðan á að bæta við sköttum á ökutæki og eldsneyti þrátt fyrir tímabundna lækkun, hinar stórkostlegu efnahagstillögur ríkisstjórnarinnar sem fólust í því að lækka vaskinn. Þar var hægt að koma með skattastyrk til ökutækjaeigenda í þrjá mánuði og lækka vaskinn á dælunni í þrjá, fjóra mánuði, stórkostlegar efnahagstillögur. Síðan á að loka hleðslugatinu. Og síðan, af því að ríkisstjórnin treystir að sjálfsögðu ekki fyrirtækjum og einstaklingum, þá er verið að fara hér aftur til haftaáranna 1930 og eitthvað og stofna einhvers konar ríkisrekið verðlagseftirlit og setja pening í það að eltast við fólk og fyrirtæki. Þetta er náttúrlega allt orðið hið — þetta er eiginlega orðið grátbroslegt, virðulegur forseti.

Síðan er hér talað um innviðafélag. Og hvað ætlar ríkisstjórnin að gera með þetta innviðafélag? Jú, inni í þessu innviðafélagi eiga að fara Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar. Og til að mæta þeim kostnaði sem er af innviðafélaginu þá stendur hér í greinargerðinni með frumvarpinu um innviðafélagið: „Til að mæta þeim kostnaði var skoðað að afhenda félaginu Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót […] Að auki var skoðað að leggja félaginu til mannvirki sem þegar hefur verið byggt og taka upp innheimtu veggjalda og var greiningin gerð miðað við að það væru Hvalfjarðargöng sem félaginu yrðu lögð til. […] Með slíkum ráðstöfunum lækkar þörf á framlagi frá ríkinu verulega, eða í 27 milljarða kr. Mögulegt er að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsveg …“

Já, það á sem sagt að koma á fót innviðafélagi og síðan á að bæta við aukasköttum ofan á hækkun á vörugjöldum á ökutæki, ofan á kílómetragjaldið, ofan á alla þessa skattasúpu sem flæðir yfir, nei, þá á að koma innviðafélag. Það á að setja inn í það eitthvað af samgöngumannvirkjum og byrja að rukka fyrir það að Keflvíkingar keyri til Reykjavíkur eða Reykvíkingar keyri til Keflavíkur. Þetta bætist ofan á allt hitt, alla hina skattasúpuna sem ökutækjaeigendur eru að taka á sig. Þetta er ótrúlegt og maður hefði í rauninni ekki trúað því miðað við — maður er reyndar farinn að trúa öllu núna — loforðin: Það á ekki að hækka vask á ferðaþjónustu. Bingó. Það er komið. Það er verið að brjóta hér hvert kosningaloforðið á fætur öðru. Skattasýkin er ótrúleg. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar upplýsti um það að skattur á banka ætti að vera 6 milljarðar. Svo var það dregið til baka og nú vitum við ekki hvort það er 1 milljarður eða 10 eða 20 eða 30 milljarðar sem á að taka af bönkunum. Eina talan sem við höfum fengið að sjá er frá framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Þá velti ég líka fyrir mér, og það væri ágætt fyrir hæstv. ríkisstjórn að muna það að fyrirtæki borga ekki skatta. Þú getur skattlagt fyrirtæki en það verða alltaf neytendurnir sem borga skattana í gegnum hærra vöruverð eða hærri þjónustu. Það er bara þannig.