fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það þarf pólitískt samtal, það er ekki spurning. Það getur verið að það séu skiptar skoðanir um hvernig við uppfyllum okkar skilyrði. Við erum að byggja á getuviðmiðum Atlantshafsbandalagsins og það er ekki þannig að það sé hægt að sópa öllu þar undir teppið, eins og ég sagði áðan. Það er líka liðin tíð að við fáum bara klapp á bakið og sagt: Þið eru svo sæt og dúlluleg. Það er mikill þrýstingur af hálfu varnarbandalagsins NATO að við uppfyllum alveg skýrt þær kröfur sem eru gerðar til okkar. Það er ekki þannig að það sé búið að útrýma öllum sjónarmiðum innan NATO um af hverju við förum ekki einfaldlega í 5%. Þá er eins gott fyrir okkur Íslendinga að standa okkur þegar kemur að þessum 1,5%.
Ég er mjög stolt af því sem hefur verið gert núna á umliðnum misserum og árum, bæði af hálfu þessarar ríkisstjórnar en líka forvera mínum í starfi; hvernig hefur verið byggt upp markvisst m.a. í Keflavík og samstarfið við Landhelgisgæsluna. Við þurfum hins vegar líka að halda áfram að styðja ríkislögreglustjóra, greiningardeildir og sérsveitina. Ég sé fyrir mér til að mynda varðandi CERT-IS að á þessu ári náum við vonandi að vera á pari við Norðurlöndin þegar kemur að vörnum gegn fjölþáttaógnum og sérstaklega netógnum sem CERT-IS fer m.a. með. Ég get líka alveg tekið undir, af því við erum náttúrlega öll í pólitík, ég vil líka gjarnan sjá eignum ríkisins umbreytt í það að fjárfesta í þessu. Til þess þarf þetta pólitíska samtal. Það er áherslumunur, já, innan ríkisstjórnar um hvernig við nálgumst þetta. En markmiðið er alveg skýrt; það kemur m.a. fram, eins og ég gat um áðan, í greinargerð frá fjármálaráðuneytinu að fjármálaráðuneytið og stjórnkerfið séu meðvituð um þá ábyrgð og skuldbindingar sem við Íslendingar stöndum frammi fyrir. Þetta er verkefni næstu ára og ég vonast til að ná góðri samvinnu við ekki síst þingmenn til að vinna að því þannig að við Íslendingar stöndum öruggari eftir.