157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:26]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ég lít svo á að við deilum nokkuð svipaðri sýn á þessi mál og það kæmi mér sannarlega á óvart ef það væri djúpstæður skoðanaágreiningur um þann vinkil í málaflokknum að efla innlenda getu og staðbundna þekkingu á sviði öryggis- og varnarmála og til að hefja það yfir allan vafa þá er ég að sjálfsögðu að tala um rannsóknir og greiningarvinnu á því sviði undir þeim ströngustu formerkjum sem kunna að vera fyrir hendi. Við eigum að sjálfsögðu að vera mjög ströng þegar kemur að þessu og er ég þó alls ekki að gera lítið úr öðrum málaflokkum utanríkismála eða öðrum þáttum sem snúa að öryggi heimsins í stóra samhenginu. Þetta varðar auðvitað fyrst og fremst getu okkar til að standa við skuldbindingar okkar og vera öflugur bandamaður, öflugur gestgjafi en þekkja líka þær hættur sem steðja að okkur staðbundið. Ég vil í þessu samhengi leggja þá fyrirspurn fyrir hæstv. ráðherra hvort það sé formlega til skoðunar hvernig hægt sé að líta á slíka uppbyggingu sem hluta af heildstæðri nálgun Íslands í öryggis- og varnarmálum og þá er ég auðvitað að tala um þetta 1,5%. Ég er viss um að innlendir aðilar sem koma úr fræðasamfélaginu öðru fremur séu tilbúnir til að sníða sér stakk eftir vexti undir þeim formerkjum sem íslensk stjórnvöld setja um það hvernig uppbyggingin geti farið fram. Ég vek athygli á því að það er bagalegt að heyra af því að okkar fremsta fólk í fræðasamfélaginu hafi ekki burði fjárhagslega til að sækja erlenda viðburði sem nágrannaþjóðir okkar geta sótt, einfaldlega vegna þess að ekki eru til fjármunir. Þurfum við ekki sem stjórnvöld að skapa rammann, setja skýr merki og fela síðan (Forseti hringir.) fræðasamfélaginu að móta tillögur sem við getum svo lagt mat á með uppbyggilegum hætti?