fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst taka undir með hv. þingmanni, það þarf að fara sterklega gegn skipulagðri glæpastarfsemi og það er einmitt núverandi dómsmálaráðherra að gera mjög ötullega. Það er markvisst verið að breyta reglum, styrkja lögregluna og gera það sem þarf. Auðvitað má gera meira en það er mjög eftirtektarvert og gott hversu sá ráðherra, dómsmálaráðherra, er einmitt með augun á boltanum þar.
Ég velti fyrir mér hins vegar þessari spurningu hv. þingmanns af því að það er alveg skýrt að samkvæmt viðmiðum NATO og kröfum NATO þá eigum við Íslendingar að uppfylla 1,5% í varnartengd málefni. Ég gat ekki ráðið af fyrirspurn hv. þingmanns hvort hann teldi rétt að við myndum uppfylla þau viðmið. Mér finnst skipta máli að Miðflokkurinn tali skýrt í þessu og styðji okkur. Ég greini ekki annað heldur en samhljóm á milli allra annarra flokka um að við þurfum að uppfylla þessi skilyrði til þess að vera ekki bara verðugur bandamaður heldur líka til þess að treysta okkur í því samstarfi sem er okkur svo mikilvægt; að halda NATO saman og vinna ötullega að því að tryggja öryggi og varnir okkar Íslendinga. Það erum við búin að vera að gera og ætlum að halda áfram að gera. Við erum búin að fara, eins og ég segi, úr 1.100 milljónum og förum á næsta ári í 2.600 milljónir. Við erum að vinna það með hagaðilum. Ég hef kallað eftir því hér að við vinnum þetta með þinginu og m.a. höfum við verið að skoða það að styrkja enn frekar CERT-IS af því að fjölþáttaógnir, netógnir, eru eitt af því sem okkur Íslendingum er helst hætta búin af, við viljum styrkja þær varnir sérstaklega. En við þurfum að halda áfram líka að styrkja Landhelgisgæsluna, ríkislögreglustjóra eins og ég hef getið um og fleiri stofnanir sem koma beint og óbeint að því að tryggja varnar- og öryggisinnviði landsins. Í það mun þetta fara. Þetta verður unnið, eins og ég segi, í náinni samvinnu við helstu hagaðila og vonandi þingheim allan og ég vona að við getum öll sameinast um það að tala skýrt. Við ætlum að uppfylla viðmið NATO, við ætlum að gera það.
Ég get farið yfir í seinna svari mínu samskiptin við Bandaríkin.