fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Varðandi Úkraínu og vopnakaup þá munum við áfram — og ég vona og ég ætla ekki að skilja orð hv. þingmanns þannig að hann vilji að hætt verði við stuðning við Úkraínu. Ég ætla ekki að túlka orð hans þannig. Það er alveg skýrt að við Íslendingar munum halda áfram að styðja Úkraínu, m.a. í gegnum þá fjölþjóðlegu sjóði sem við höfum farið í, til að mynda danska frumkvæðið, tékkneska módelið o.s.frv. Fyrst og síðast er verið að hlusta á það sem eru þarfir Úkraínu, það eru annars vegar vopnakaup og hins vegar líka uppbygging á borgaralegum innviðum sem við Íslendingar erum til að mynda góðir sérfræðingar í, t.d. á sviði orkumála. Til viðbótar fer þetta framlag, þessi viðbót, og það er skýrt, í innviði. Við munum halda áfram að byggja upp í Keflavík. Við þurfum til lengri tíma — og það er ekki alveg búið að setja það niður, enda myndi ég vilja gera það í samvinnu við þingnefnd — að fara í uppbyggingu radarkerfisins. Það kostar líklega um 60 milljarða, 50–60 milljarða, að byggja upp radarkerfi okkar hér á Íslandi og það er áætlun sem við verðum að vinna saman. Við höldum áfram að efla aðra getu og síðan er það þátttaka í alþjóðasamstarfi og á sviði varnar- og öryggismála og þar er náttúrlega NATO alveg skýrt.
Ég hef átt mjög fín samtöl, hvort sem er við Elbridge Colby eða Landau sem hringdi í mig um daginn og við fórum yfir ýmis málefni sem hann vildi leggja áherslu á. Og vel að merkja, hann talaði ekki um umsóknina og þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið og hann nefndi ekki einu sinni Ísrael á nafn þó að þetta samtal hafi verið að hans frumkvæði. Við ræddum varnarmál og við ræddum mikilvægi samstarfs við Íslendinga og hvað það hefði verið dýrmætt í gegnum tíðina og samskiptin við Bandaríkin. Þetta hafa verið opinská samtöl og hreinskiptin og þeir kunna að meta að við erum að benda á söguna í gegnum tíðina, hvernig hún hefur verið okkur farsæl en líka Bandaríkjunum og hvernig við höfum byggt þetta upp og þannig verður það áfram. Við höldum þessu samtali áfram við Bandaríkin á þessum nótum en það er alveg ljóst að þunginn af þeirra hálfu, eins og allra annarra ríkja innan NATO, er á það að við (Forseti hringir.) uppfyllum okkar skuldbindingar, þar með talið þetta 1,5%, og okkur verður ekkert gefinn mikill afsláttur af því.