fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég er hérna á mjög svipuðum nótum og kollegar mínir varðandi varnarmálin og fjármögnun varnarmála. Ástæðan fyrir því er sú að þetta hefur verið töluvert til umræðu í fjárlaganefnd þar sem ég á sæti og við í nefndinni höfum svolítið verið að velta þessu fyrir okkur, sérstaklega í ljósi loforða forsætisráðherra eða yfirlýsingar forsætisráðherra frá 11. júní 2025 um þetta 1,5% hlutfall landsframleiðslu, sem hæstv. forsætisráðherra sagði að ætti að taka gildi 2032 eða 2035. Þetta eru 70–77 milljarðar áætlaðir og ég verð að lýsa undrun minni á því að það sé ekki fjallað um þetta. Þó að það sé alveg klárt að 2032 falli utan við tímaramma þessarar áætlunar þá er sú aukning sem er boðuð hér langt í frá nægjanleg, hefði maður haldið. Maður hefði haldið að við værum að teygja okkur hægt og rólega upp í þessa tölu en aukningin er, að mér sýnist, eins og ég get lesið fjárlagafrumvarpið, 2,6 milljarða aukning 2027, svo niður í 2,1 og svo í 2. Kannski er ég að lesa þetta vitlaust. En mig langar bara að spyrja hæstv. utanríkisráðherra af hverju þessum fyrirætlunum séu ekki gerð betri skil í fjármálaáætlun, hvort það hafi ekki staðið til. Mér finnst það mjög sérstakt af því að þetta eru nú ekki smáaurar sem hér er verið að ræða um þannig að ég held að það hefði alveg verið hægt að splæsa einni síðu í umfjöllun um það.