fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra kærlega fyrir svarið og ég tek undir með hæstv. ráðherra hvað það varðar að ef það hefur einhvern tímann verið þörf fyrir að ræða öryggis- og varnarmál í þessu húsi þá er það svo sannarlega núna. Það er mikil óvissa uppi og meiri en við höfum kannski séð um mjög langa tíð og ekki sér fyrir endann á því hvernig það mun allt saman þróast. En sú átt, virðulegur forseti, sem ég er að koma úr er einfaldlega sem nefndarmaður í fjárlaganefnd. Nú erum við að ræða hér fjármálaáætlun sem nær til ársins 2031 og við erum að reyna að skýra þá mynd í efnahagsmálum þjóðarinnar og þá stefnu sem ríkisstjórnin er að marka til þess tíma. Ég segi það enn að mér finnst sérstakt miðað við þá hækkun sem hefur verið boðuð hér, þessi tala, 70–77 milljarðar, að það sé ekki komið inn í neinar áætlanir varðandi utanríkismálin að það sé einhver stígandi í útgjöldum í málaflokknum. Ég hef fullan skilning á því og ber virðingu fyrir því að það sé verið að vinna þessar tölur og ef þær eru ekki komnar þá er það bara svar. Við höfum reyndar verið að kalla eftir því í fjárlaganefnd að fá betri yfirsýn og upplýsingar um hvaða verkefni þetta eru sem þarna eru undir, hvaða verkefni sem mögulega falla þarna undir. Ég vil bara spyrja hæstv. utanríkisráðherra að því í síðara andsvari hvort hæstv. ráðherra sjái eitthvað því til fyrirstöðu að fjárlaganefndin fái upplýsingar um það hvaða verkefni er verið að tala um, bæði núverandi varnartengd verkefni og þau verkefni sem við gætum séð þá inn í framtíðina, bara til þess að styrkja enn þá betur þá vinnu sem fjárlaganefnd þarf að fara í varðandi þessa fjármálaáætlun.