157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:53]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því, sem ég hef reyndar áður gert, að hrósa hv. þingmanni fyrir það að hafa sífellt og jafnt og reglulega tekið upp varnar- og öryggismál hér í þinginu og líka þegar það var ekki í tísku, líka þegar það var ekki efst á baugi. Þingmaðurinn hefur að mínu mati verið óþreytandi í því að minna okkur á að við þurfum að standa við okkar skuldbindingar og rækta samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins og við okkar helstu vinaþjóðir og það er ekki sjálfgefið. Það er eitt af því sem við finnum núna í dag sem stjórnvöld að það þarf svolítið að kveikja og vekja þennan áhuga hjá almenningi, eiga þetta samtal. Við höfum talað um að fræða en ekki hræða og hvað það felur í sér að leggja aukna áherslu á varnar- og öryggismál, að leggja aukið fjármagn í þau, ekki bara af því að einhver lönd úti í heimi segja okkur að gera það í gegnum bandalagið heldur út af því að okkur ber skylda til þess að verja öryggi þegnanna sem er frumskylda stjórnvalda hverju sinni. Ég vil þakka þá umræðu sem hefur átt sér stað.

Já, vinnan í tengslum við skýrsluna og greiningarnar sem henni fylgja er hafin, við skilum eftir rúman mánuð. Hún mun auðvitað hafa áhrif á fjárlagagerð og ég mun líka í framhaldi óska eftir fundi í utanríkismálanefnd þar sem við munum fara yfir þetta og vonandi getum við ýtt af stað þessari þingmannanefnd sem ég hef áður minnst á hér og mun gegna mikilvægu hlutverki.

Varðandi sveitarfélögin þá hafa óformleg samtöl átt sér stað. Ég hef átt samtal við forystufólk Sambands íslenskra sveitarfélaga, (Forseti hringir.) það hefur ekki verið farið mikið á dýptina en þau eru öll meðvituð um að þeirra ábyrgð er líka þarna og það hafa margar ágætar hugmyndir komið, sumar falla ekki undir þetta, ég ætla bara að segja það, sumar hugmyndir falla ekki undir 1,5% en aðrar hugmyndir eins og til að mynda um viðlegukanta og fleira í höfnum geta skipt máli. (Forseti hringir.) Til lengri tíma vil ég gjarnan að við verðum ekki bara svæði sem tekur á móti á flugvellinum, ég sé fyrir mér að við eigum alla vega að ræða það hvort við getum líka byggt upp betri aðstöðu til að taka á móti kafbátum og fleiri stórum sjóförum.