fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Ég tek undir þetta varðandi sveitarfélögin og ég held einmitt að hafnarsjóðir, sem eru almennt undir sveitarfélögunum — það þarf að rækta þetta samtal sem snýr að þessu. Það er mikilvægt að það séu til staðar hafnir í landinu sem geta veitt ákveðna þjónustu. Ég bendi líka á eldsneytisbirgðir sérstaklega við hafnir landsins, hvort það sé hægt að efla það, og eldsneytisbirgðir á varaflugvöllunum, alla vega eldsneytisbirgðir í landinu. Flugvélaeldsneyti er á einum stað í landinu, Helguvík. Það er viðkvæmt og við þurfum að huga að því.
Mig langar síðan í stuttu máli, þetta er nú ákaflega stuttur tími sem við höfum, að nefna borgaralegu þjónustuna og Landhelgisgæsluna. Sá sem hér talar hefur verið með þingmál um eflingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar og staðsetningu á Akureyri m.a., sem ég tel eitt heppilegasta málið sem gæti fallið undir þetta 1,5%, mál sem snýr sannarlega að borgaralegri þjónustu, varnar- og öryggismálum, leit og björgun í Norður-Atlantshafi og sveitin hefði síðan mikilvægu hlutverki að gegna varðandi loftrýmisgæsluna, gæti nýst þar. Ég vil líka tala um ríkislögreglustjóra og mikilvægi þess að styrkja þá starfsemi. Hér hefur komið fram í umræðunni erlend glæpastarfsemi og ýmislegt en hjá ríkislögreglustjóra er líka staðsett sérsveitin. Ég held að það sé mjög eðlilegt að skoða það hvað hægt er að gera í tengslum við 1,5% varðandi sérsveitina og styrkja hana. Það er mikilvægt mál sem er undir hatti ríkislögreglustjóra. Síðan hefur ráðherra lagt áherslu á CERT-IS þannig að það er af nógu að taka. Síðan er náttúrlega það mál sem sá sem hér stendur hefur verið með í þinginu varðandi rannsóknarsetur um öryggis- og varnarmál. Það er af mörgu að taka og við klárum það greinilega ekki í þessari stuttu umræðu.
En það kemur fram hér að það sé búið að ráðstafa sirka 0,8–0,9%. Ég spyr að lokum: Hefur á einhverjum tímapunkti komið upp umræða um að það væri krafist hærri upphæðar á Íslandi heldur en sem nemur 1,5% af landsframleiðslu? Hvernig hefur það samtal þróast á síðustu vikum og mánuðum?