fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil sérstaklega draga það fram varðandi sveitarfélögin að það er fyrst og fremst verið að ræða við þau um að gera grein fyrir innviðum sem þar eru. Það er verið að kortleggja þá, hverjir kunni að nýtast og hverjir ekki, en það er ekki verið að leggja á sveitarfélögin viðbótarálag. Skuldbindingarnar eru okkar, þ.e. ríkisins. En við erum að kortleggja í samvinnu við sveitarfélögin hvað er hægt að nýta og hvað fellur þarna undir og fjármálaráðuneytið leiðir þá vinnu í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Það er sérstaklega verið að skoða þá innviði hjá sveitarfélögum sem geta nýst bæði í borgaralegum tilgangi og hernaðarlegum tilgangi og það getur vel verið að það þurfi á ákveðnum stöðum að bæta við út frá hernaðarlegum viðmiðum; það kemur bara í ljós og slíkt mat mun byggja á varnaráætlunum bandalagsins og Íslands og í samræmi við getumarkmið NATO. En það er sem sagt verið að vinna þétt með sveitarfélögunum að þessu verkefni sem snýr líka að innleiðingu á þessum áfallaþolsviðmiðum sem við höfum komið inn á líka.
Ég vil taka undir og undirstrika að öll bandalagsríki munu á þessu ári, eins og við þekkjum, verja a.m.k. 2% til varnarmála og hafa skuldbundið sig til að hækka framlög í 5% að lágmarki. Þetta þekkjum við. Sum ríki, eins og Pólland og mig minnir eitt af Eystrasaltsríkjunum, eru þegar komin upp í það viðmið og mörg eru þarna á bilinu 3,5, 4–5%. Kastljósinu hefur verið beint að því hvað varðar Ísland hvernig við ráðstöfum varnartengdum fjárveitingum. Það hafa átt sér stað samtöl um það og útskýringar enn og aftur — það virðist vera að fólk gleymi því á þessum tæplega 80 árum sem við höfum verið innan NATO, 77 árum, að upphaflega vorum við herlaus þjóð og erum það enn og (Forseti hringir.) framlag okkar hefur verið í gegnum tíðina með öðrum hætti. Maður fær samt alltaf spurninguna: Af hverju getið þið samt ekki farið í 5% þótt þið séuð ekki með her? (Forseti hringir.) Þessum spurningum þurfum við að svara og gera það aftur og aftur. (Forseti hringir.) En þess þá heldur er þrýstingurinn á að við gerum rétt og stöndum okkur þegar kemur að 1,5%.