fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti heyra málefni menningar og skapandi greina, háskóla, vísinda og nýsköpunar, rannsókna og fjölmiðla, íslenskrar tungu, máltækni og gervigreindar. Verkefni ráðuneytisins verður að leggja áherslu á að styðja við nýframlagða atvinnustefnu Íslands. Þar er okkar hlutverk ekki síst áhersla á nýsköpun og að tryggja færni mannauðsins til framtíðar. Við ætlum að standa vörð um fjármagn til rannsókna og nýsköpunar með öflugu stuðningskerfi um allt land og virkri þátttöku í evrópskum áætlunum. Hins vegar felast tækifæri í endurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki en á grundvelli nýlegra lagabreytinga og ábendinga frá nýsköpunarumhverfinu tel ég afar mikilvægt að við skoðum það að einfalda reglugerð og umsóknarferli. Það var brugðist við því strax núna í mars með skipun fagnefndar sem hefur það hlutverk að vinna með Rannís í afgreiðslu umsókna um skattafrádrátt vegna rannsókna og þróunarverkefna. Hækkun útgjalda til málefnasviðs nýsköpunar, rannsókna og þekkingargreina skýrist einmitt af styrkjum til nýsköpunarfyrirtækja en einnig nýjum fjárveitingum í máltækni og gervigreind. Reglubundnum fjárframlögum til máltækni og gervigreindar í fjármálaáætlun er ætlað að styrkja enn stöðu íslenskrar tungu í stafrænum heimi og skapa ný tækifæri í almennri tækni- og gervigreindarþróun. Það er stefnt að öruggum skrefum í átt að gervigreindarfullveldi sem byggir á nægri reiknigetu, aðgengi að opnum og áreiðanlegum gögnum og að stigin verði skref að öflugu íslensku mállíkani. Ég fagna því að undanfarna daga hefur verið mikil umræða um þetta og næstu vikur munu einmitt fara í samráð við okkar færustu sérfræðinga innan lands og frekari greiningarvinnu.
Virðulegur forseti. Það verður lögð áhersla á eflingu íslenskrar tungu, m.a. með nýjum stuðningi við útgáfu barna- og unglingabóka og ný aðgerðaáætlun verður unnin í samvinnu ráðuneyta, m.a. með áherslu á íslenskukennslu fyrir innflytjendur.
Áfram verður unnið að endurskoðun endurgreiðslukerfis kvikmyndagerðar og reynt að gæta að þeim þáttum sem hafa gengið best í að tryggja störf í greininni og auka hróður Íslands. Breytingar sem tóku gildi um áramót styrktu framleiðslu barna- og ungmennaefnis og juku fyrirsjáanleika í útgjöldum ríkissjóðs.
Á þessum ófyrirséðu tímum örra tæknibreytinga gegna ritstýrðir fjölmiðlar meira máli en nokkru sinni fyrr. Því munum við í fyrsta lagi auka fjármuni í fjármálaáætlun sem varið verður til stuðnings þeim. Þetta er í samræmi við aðgerðaáætlun sem var kynnt í desember síðastliðnum. Áfram er gert ráð fyrir 550 milljónum í almenna stuðningskerfið, eins og hefur verið undanfarin ár, en sá stuðningur verði festur í sessi næstu fimm árin til að skapa nauðsynlegan fyrirsjáanleika. Til viðbótar þessu er frumvarp í vinnslu í ráðuneytinu sem kveður á um að andvirði 10–12% af auglýsingatekjum RÚV bætist við þetta stuðningskerfi, auðvitað með þeim fyrirvara að Alþingi hefur alltaf síðasta orðið um skiptingu fjárheimilda til málefnasviða og málaflokka í fjárlögum. Í þriðja lagi mun ég innan skamms mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á fjölmiðlalögum þar sem allt að 300 milljónum verður varið til viðbótarstuðnings sem verður veittur einkareknum fjölmiðlum sem uppfylla skilyrði um almannaþjónustu.
Virðulegur forseti. Háskólar eru lykilstoð samfélagsins og forsenda nýsköpunar og þekkingar. Kerfið stendur þó frammi fyrir ýmsum áskorunum, þar á meðal að fjármögnun hefur verið undir því sem gerist á Norðurlöndunum. Við erum staðráðin í að styrkja áfram öflugt háskólastarf á Íslandi og höfum ráðist í stefnumótun á þessum vettvangi. Í fjármálaáætlun gerum við ráð fyrir að auknu fjármagni verði veitt til háskóla til að mæta fjölgun nemenda og styrkja kerfið, en einnig til að leggja áherslu á STEM-greinar og heilbrigðisgreinar og aukið samstarf milli háskóla og atvinnulífs. Útgjöld hækka um 2,1 milljarð kr. Unnið verður að því að mæta hagræðingarkröfu með hagkvæmni, samstarfi, sameiningum og aðhaldi í rekstri. Áfram verður unnið að því að styrkja stöðu háskólanna innan ramma ríkisfjármálanna.
Virðulegur forseti. Neysla lista og menningar sem heyrir undir okkur er ekki lúxus heldur grunnþörf mannsins og oft límið í sjálfum samfélögunum. Það verður því áfram stutt blómlega við menningu og listalíf og forgangsatriði að tryggja aðgengi allra að því, óháð búsetu og efnahag. Sérstök áhersla verður lögð á börn og ungmenni og menningarsamninga og menningarhús um allt land.
Virðulegur forseti. Ég hef stiklað á stóru um helstu áherslur ráðuneytisins.