fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég held að við getum a.m.k. verið sammála um að ritstýrðir fjölmiðlar gegni alveg gríðarlega miklu hlutverki einmitt núna á þessum kviku tímum þar sem er mikill órói í heimspólitíkinni, þar sem samfélagsmiðlar og gervigreind eru farin að sækja í sig veðrið og stór hluti landsmanna, sérstaklega ungt fólk, er í meira mæli farinn að sækja upplýsingar þangað þar sem er ekki á vísan að róa hvort upplýsingarnar séu áreiðanlegar. Þess vegna ákváðum við að miða aðgerðirnar við það að reyna að tryggja að það fé sem Ríkisútvarpið myndi missa við það að setja einhverjar skorður við auglýsingasölu þar myndi haldast innan okkar kerfis. Á sama tíma yrði Ríkisútvarpinu falið stærra hlutverk að vinna með einkareknu fjölmiðlunum og það getur verið í ýmiss konar formi. Það getur verið með deilingu á efni eða aðstoð við tæknibúnað og annað. Það er ástæðan fyrir að sú leið var farin. Og, nei. Við skoðuðum mjög ítarlega tillögu Miðflokksins um að leyfa landsmönnum að ráða hvert þeir verðu sínu gjaldi. Við komumst að því að það væri ekki skynsamleg leið vegna þess að fyrirsjáanleiki og langtímasýn fyrir fjölmiðla skipta gríðarlega miklu máli og þetta gæti orðið mjög kvikur peningur sem gæti ratað frá og til fjölmiðla, bara mjög auðveldlega milli ára. Við töldum að sú leið væri ekki góð en við skoðum hana ítarlega.