157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:42]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Nei, guð minn almáttugur, ég ætla heldur ekki að tala það niður að almenningur hafi fengið hærri rödd á samfélagsmiðlum og víðar. En þetta er ekki endilega umræða um rödd einstaklinganna heldur vitum við alveg að stór hagsmunaöfl og jafnvel ríki eru farin að misnota þetta alveg skelfilega. Það er einhvern veginn þannig að alveg sama á hvaða könnun og á hvaða kvarða maður horfir þá eru þau ríki sem eru með öfluga ríkisrekna fjölmiðla þau lönd sem eru að mælast með mest traust á fjölmiðlum líka. Það sem lá til grundvallar því að ég vildi ekki fara leið Miðflokksins að fullu a.m.k., þó að það hafi verið skoðaðar útfærslur á því, var að ég taldi og tel enn þá að það sé nauðsynlegt að finna leiðir til að styrkja einkarekna fjölmiðla án þess að veikja Ríkisútvarpið af því að ég held að Ríkisútvarpið sé kjölfesta í þeim óróa sem við búum við núna.

Geta fjölmiðlar með ritstjórn haft alls kyns áform og gildishlaðnar skoðanir? Já, vissulega. En það er þó alla vega eitthvert traust í því að það sé ritstjórn og ég tel að Ríkisútvarpið standi hins vegar fyllilega undir nafni sem hlutlægur og góður fjölmiðill og ég er ekki einn um það heldur telur mikill meiri hluti þjóðarinnar það líka. Ég vona bara að þegar fjölmiðlafrumvarpið kemst inn í þing á næstu dögum getum við átt málefnalega umræðu um fjölmiðla. Eins og við þekkjum þá á þingið til að laga til frumvörp og ég er alveg viss um að þingið stendur undir því að gera það líka við þetta.