157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:47]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Já, þessi vinna gengur ágætlega en auðvitað mættu hlutir ganga hraðar. Við höfum verið að vinna að sameiningu sjóðanna, eins og hv. þingmaður þekkir, styrkja þá, breyta aðeins hlutverki þeirra og gera þá tæka til að sinna fleiri verkefnum en áður. Við höfum líka verið að vinna að þessari sameiginlegu sjóðagátt sem ég held að skipti gríðarlega miklu máli af svo mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi þannig að þeir einstaklingar sem hyggjast sækja um hafi mjög aðgengilega aðkomu og yfirsýn yfir hvað er í boði, hvenær og hvernig en líka til þess að stjórnvöld sjái hverja er verið að styrkja. Er verið að styrkja einhverja mörgum sinnum eða hvernig er þessu háttað? Sú vinna mun halda áfram og hún skiptir alveg gríðarlega miklu máli og ég held að við hv. þingmaður getum verið sammála um það.

Við gerðum auðvitað breytingar á lögum um kvikmyndaendurgreiðslur rétt fyrir áramót sem voru til bóta fyrir greinina. Endurgreiðsla til barna- og unglingamynda hækkaði og fyrirsjáanleikinn var líka aukinn með því að stærri styrkir fengju ekki útgreiðslu fyrir eftir 18 mánuði og það var til að taka á því sem kemur ævinlega upp á haustin og hv. þingmaður sem situr í fjárlaganefnd þekkir vel. Það er starfshópur að störfum og við vonumst til þess að hann geti klárað með haustinu. Það er þó mikilvægt að núna séu lögin í gildi til 5 ára, það að hafa hangandi yfir sér að endurskoðun sé í gangi skil ég alveg að getur verið erfitt.

Varðandi Kríu þá ætla ég bara að segja, og ég skal koma svo í seinna andsvarinu með ESB-rökin, en það skiptir svo miklu máli að hafa sjóði eins og Kríu vegna þess að þetta net nýsköpunar er misgisið (Forseti hringir.) og það þarf að grípa og halda utan um einstaklinga allan tímann.