157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:53]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara yfir sinn málefnaflokk og kannski kemur honum ekki mikið á óvart að ég vilji ræða hér málefni fjölmiðla í hans ráðuneyti. Reyndar er það sem ég var búinn að punkta niður aðeins farið fyrir bí fyrir þær sakir að hæstv. ráðherra segir hér í pontu að RÚV sé kjölfesta í íslenskri fjölmiðlun á þessum viðsjárverðu tímum sem við lifum sem hljóta að vera ansi vond og leiðinleg skilaboð fyrir t.d. góðvini okkar hv. þm. Snorra Mássonar á fréttastofu Sýnar sem ég held að reyni að sinna sínu hlutverki af kostgæfni í hvívetna. Maður heyrði líka bara beint frá hæstv. ráðherra hvers vegna hann neitar hreinlega að taka RÚV af auglýsingamarkaði og af hverju það einfaldlega kemur ekki til greina því þetta er kjölfestan í íslenskri fjölmiðlun. Hann vill halda áfram styrkjum til einkarekinna fjölmiðla og reyna að halda þeim á lífi þannig án þess þó að takmarka hlutskipti RÚV. Þetta er það sem hefur verið reynt undanfarin ár en samt eru margir af stærstu fjölmiðlunum annaðhvort dauðir eða deyjandi drottni sínum nánast dag eftir dag og við sjáum bara hvað er að gerast hjá mínum gömlu vinum á Sýn. Það er í raun og veru verið að vinna að því að gera RÚV áhrifameira þegar kallið hefur verið, eða alla vega frá mér og fleirum, að reyna að takmarka og gera hlutverk RÚV miklu afmarkaðra og skilvirkara. Það er hægt að gera það með því að spara peninga og ég held að það sé einmitt eitthvað sem þessi ríkisstjórn þarf að fara að gera, þ.e. að spara svolítið af peningum. Ég næ ekki hvernig þetta fer saman, hljóð og mynd, að ætla að halda áfram að halda RÚV á spenanum og gera engar breytingar þar. Ég vildi kannski byrja á því að spyrja hæstv. ráðherra: Kemur engan veginn til greina að setja RÚV á fjárlög, eins og kemur fram í frumvarpi hv. þm. Hildar Sverrisdóttur, reyna að setja því einhverjar alvöru skorður, endurskilgreina RÚV, hvað það eigi að gera, (Forseti hringir.) niðurnjörva sérstaklega fréttakaflann og reyna þannig að ýta meiri fjármunum út til einkarekinna fjölmiðla og styðja í alvörunni við einkarekna fjölmiðla en ekki með þessu sem búið er að reyna að gera hér?