157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:06]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargott svar að mörgu leyti. Ég er hjartanlega sammála því að það þarf að huga vel að hagsmunum rithöfunda í þessari jöfnu og það hefur auðvitað borið á því í alþjóðlegri umræðu um gervigreind að verulegur misbrestur hafi verið á slíku. Þegar maður talar um þennan óhjákvæmileika þess að allt sem þegar hefur verið ritað rati að lokum inn í gervigreind þá vill maður auðvitað að það gerist á þannig forsendum að mönnum sé umbunað fyrir verkin. Ég held líka að tæknin bjóði upp á lausnir til þess, hvort sem það er hundraðkall eða tvöhundruðkall í hvert skipti sem einhverju er flett upp eða annað eins eða að maður borgi sérstaklega fyrir gögnin. Ég held í raun og veru að þetta gæti bara verið tekjulind fyrir margt sem kannski að öðru leyti er úrelt eða liggur inni á bókasafni eða annað slíkt. Ég held að það séu tækifæri í því.

Ég lýsi mig mjög fúsan til að vinna með hæstv. ráðherra að þessum málum. Ég tel að það sé með brýnari málum að gervigreindin verði vel hugsandi á íslensku og hafi rétta þekkingu en ekki bara einhverjar lélegar Wikipedia-greinar eða aðrar eins til að byggja á þegar hún svarar Íslendingum sem spyrja um sína eigin sögu. Gömul tímarit, gömul dagblöð, gamlar frásagnir, þetta þarf að vera þarna inni. Möguleikarnir eru til staðar. Þetta er ekki tæknilega stórkostlega flókið. Þetta kostar ekki stórkostlega mikið af peningum. Þetta er hægt og þetta er afar spennandi.

Í sambandi við það sem við tölum um þegar við tölum um fullveldisgervigreind þá er það að mörgu leyti afar athyglisverð umræða sömuleiðis. Hæstv. ráðherra ritaði athyglisverða grein um þetta atriði á sínum tíma og út frá því hefur spunnist nokkur umræða meðal þeirra sem sýsla með gervigreind á Íslandi. Það eru skiptar skoðanir á því hvernig þetta eigi að vera framkvæmt, skiptar skoðanir á því hvaða erlendu fyrirtæki sé rétt að semja við til þess að annaðhvort hýsa svona fullveldisgervigreind — og svo menn skilji hvað er átt við með því þá er það einhvers konar allsherjargervigreind ríkisvaldsins þar sem er m.a. hægt að sýsla með viðkvæmar upplýsingar sem eru vegartálmi í notkun gervigreindar á ýmsum sviðum og í mikilvægu ferli stafvæðingar alls kerfisins. En það sem maður hefði kannski áhuga á að fá frá hæstv. ráðherra væru upplýsingar um fyrirheitin. Er verið, t.d. af því að nefnt hefur verið fyrirtækið Mistral um að smíða svona gervigreind, að vinna að samningum við eitthvert tiltekið erlent gervigreindarfyrirtæki eða er þetta enn þá allt opið? Og verður það erlent gervigreindarfyrirtæki sem mun enda á að byggja þetta upp fyrir Íslendinga?