157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:09]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður er tilbúinn til að vinna að þessu af því að ég veit að öll sem hér eru inni, held ég, átta sig á því að þetta er mjög mikilvægt. Þetta er bara dálítið snúið fyrirbæri vegna þess að á sama tíma og gervigreindarforrit dagsins í dag geta búið til músík og lög og jafnvel bækur þá kunna þau líka nógu mikið í lögfræði til að líkja bara hæfilega eftir þessu. Það er því búið að setja listafólkið í mjög viðkvæma stöðu og þess vegna erum við að vinna líka að höfundaréttarlögum og fylgjast með hvað verið er að gera annars staðar þar. Við getum ekki leyft þjófnað á þessum hlutum eins og hv. þingmaður ræddi um og ég er sammála honum um það.

Ég fagna gríðarlega þessari miklu umræðu sem hefur verið í kjölfar greinarinnar og við höfum haft samband við nokkra af þeim sem hafa skrifað á undanförnum dögum og viljum hitta þetta fólk sem er margt feikilega fært á sínu sviði og sérfræðingar í þessu. Við höfum enga fyrir fram gefna lausn í þessu heldur viljum á endanum rata á slóð sem leiðir okkur til góðs.

Hvað varðar samninga við einstök fyrirtæki: Nei, en við höfum rætt við ýmsa aðila, innlenda og erlenda, og það er margt sem gerir það að verkum að þetta er flókið. Þróun risamállíkans frá grunni kallar á sterka reikniinnviði, mikið magn af þjálfunargögnum og sérfræðiþekkingu. Það getur vel verið að lausnin reynist nær okkur en við höldum en svona verkefni er auðvitað alltaf útboðsskylt þannig að það mun engum verða rétt neitt í þessu.