fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Það er gert ráð fyrir að útgjaldarammi málefnasviða atvinnuvegaráðuneytisins verði um 39 milljarðar á fyrsta ári áætlunarinnar en verði kominn í 37,2 milljarða kr. í lok tímabilsins og nemur lækkunin um 2,2 milljörðum frá fjárlögum 2026 sem skýrist fyrst og fremst af aðgerðum til lækkunar ríkisútgjalda sem nema samtals 1,6 milljörðum kr. Þrátt fyrir að um aðhaldssama og ábyrga áætlun sé að ræða eru ýmis áherslumál þar sem fjárheimildir taka breytingum til hækkunar. Gert er ráð fyrir að þessar auknu fjárheimildir verði innan ramma málefnasviða ráðuneytisins í áætluninni og með þeirri forgangsröðun er áfram lögð áhersla á að styrkja innviði grunnatvinnugreina okkar og skapa skilyrði fyrir aukinni verðmætasköpun.
Ég ætla að fara í stuttu máli yfir hvert málefnasvið og byrja á landbúnaðinum. Þar er gert ráð fyrir 100 millj. kr. hækkun á árinu 2027 til að stuðla að aukinni framleiðslu á korni, auk þess sem stutt verður við þróunarverkefni og uppbyggingu innviða í kornrækt. Áfram verður unnið að útrýmingu riðu á Íslandi í samræmi við landsáætlun en eins og menn vita er hér um að ræða mikilvægt mál fyrir íslenska bændur og landið allt og markmiðið er að losa okkur við riðuveikina sem barist hefur verið við í meira en 150 ár. Þá erum við á lokametrunum við að framlengja formlega búvörusamninga um eitt ár til viðbótar eða út árið 2027 og verið er að ganga frá formlegu samkomulagi við Bændasamtökin þess efnis. Til að efla stoðir landbúnaðar verður sérstaklega hugað að því að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun en jafnframt er gert ráð fyrir að stuðningur hins opinbera verði samhæfður með það að markmiði að styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar. Fjárhæðir sem birtast í fjármálaáætlun taka mið af núverandi kerfi en fjárhæðir kunna að taka breytingum þegar útfærsla nýs stuðningskerfis liggur fyrir í ársbyrjun 2028.
Á málefnasviði sjávarútvegs og fiskeldis hefur á undanförnum árum auknum fjárheimildum verið varið til eflingar hafrannsóknum og fiskveiðieftirliti. Í áætluninni er gert ráð fyrir að þessir auknu fjármunir haldist innan ramma málefnasviðsins. Sjávarútvegur býr, eins og aðrar helstu útflutningsgreinar okkar, við mikla alþjóðlega samkeppni og þarf því að búa greininni samkeppnishæft umhverfi og stuðla þar með að styrkingu íslensks atvinnulífs og samfélags. Þá verður ýtt undir orkuskipti og stutt við nýsköpun til að styðja við samdrátt í losun vegna sjávarútvegs og til að auka framleiðni. Markmið lagareldisfrumvarps atvinnuvegaráðherra, sem er nú í atvinnuveganefnd, er að skapa lagareldi á Íslandi skýran lagaramma og ýta undir vöxt og verðmætasköpun greinarinnar með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi. Er í þeim efnum m.a. litið til innleiðingar á hvötum til eldis á ófrjóum laxi og eldis í lokuðum kvíum til að sporna við neikvæðum áhrifum á lífríki.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hvað varðar ferðamál er lögð áhersla á verðmætasköpun, öryggi ferðamanna og álagsstýringu. Á næsta haustþingi mun ég leggja fram heildstæða umgjörð fyrir framtíð ferðaþjónustunnar til að styrkja rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni greinarinnar. Unnið verður að langtímaáætlun fyrir viðvarandi markaðssetningu, öryggi og náttúruvernd en um leið mótaðar leiðir til fjármögnunar nauðsynlegra innviða. Áformin ganga út á að náttúru- og innviðagjald standi þannig undir ábyrgri uppbyggingu greinarinnar.
Á málefnasviði samkeppnis- og neytendamála er gert ráð fyrir 100 millj. kr. lækkun á árinu 2028 á tímabundnu 200 millj. kr. framlagi sem kom inn í fjárlögum 2026 til eflingar samkeppnis- og neytendamálum. Áfram verður mörkuð sú framtíðarsýn að á Íslandi verði traust umgjörð neytendamála sem stuðlar að virkri samkeppni og veitir neytendum vernd og nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um leið og óréttmætum viðskiptaháttum er mætt af festu. Má þar m.a. nefna frumvarp til nýrra markaðssetningarlaga sem lagt hefur verið fram á Alþingi og bíður nú 2. umræðu. Á haustþingi er síðan fyrirhugað að leggja fram frumvarp til laga á sviði neytendamála sem mun heilt yfir styrkja málaflokkinn í átt að aukinni neytendavernd.
Þessi mál sem ég hef farið hér yfir á hundavaði og fleiri til heyra undir mitt ráðuneyti. Öll miða þau að því að styrkja stoðir grunnatvinnugreina, einfalda kerfi og búa þannig um hnútana að öflugt íslenskt atvinnulíf geti sótt fram og skapað verðmæti. Það hefur frá fyrsta degi verið leiðarstef mitt sem ráðherra og sú fjármálaáætlun sem hér er til umræðu ber þessum áherslum glöggt vitni.