157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:16]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Það er knappur tími hér þannig að ég held ég vindi mér bara strax í þessi mál. Ég er að velta fyrir mér landbúnaðinum. Þá sé ég að það er kannski í það heila gert ráð fyrir minnkun eða við skulum segja að þau standi í stað, framlög til landbúnaðarins. Ég velti því fyrir mér í ljósi þeirra, ég ætla að leyfa mér að segja, háleitu markmiða sem koma hér fram í framtíðarsýninni, hvernig við förum að því að leysa úr því miðað við það fjármagn sem þarna er í boði. Svo langar mig að forvitnast aðeins, af því að hér er rætt um farsæl kynslóðaskipti, hvort ráðherra gæti farið ofan í það. Hvernig sér hún fyrir sér að það náist miðað við það fjármagn sem þarna er í boði? Einnig langar mig til að nefna sorp eða í rauninni dauð dýr, hér er talað um að það verði sérstök söfnun dýraleifa en það er verið að draga úr fjármunum þar. Hugmyndin var að leysa það, ef ég man rétt, í samráði við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Er þetta spurning um nýja brennslustöð eða er eitthvað annað undir þarna?

Einnig vil ég nefna, svo ég fari yfir í sjávarútveginn á þessum stutta tíma, fiskeldið. Sér ráðherra fyrir sér að við náum að klára lagareldisfrumvarpið á þessu þingi? Er það ekki mikilvægt?

Einnig langar mig til að forvitnast um samkeppnishæfni sjávarútvegs, hvort ráðherra sjái ekki fyrir sér að við munum reyna að hafa álögur á sjávarútveginn eins lágar og nokkur kostur er og vísa ég þar til langdreginnar umræðu um veiðigjaldið.