157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:19]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Fyrst varðandi búvörusamningana, það er rétt, það er auðvitað verið að vinna núna að framlengingu og af því að þessi tímabil skarast þá er það þannig að fjárhæðir sem birtast í þessari fjármálaáætlun taka mið af núverandi kerfi. Það er 1% raunlækkun á milli ára en samningarnir eru á móti undanskildir aðhaldskröfu í fjárlögum. En auðvitað, eins og lög gera ráð fyrir, verði þar breytingar á þá aðlögum við það. En stóra markmiðið, til að tengja síðan yfir í spurningu hv. þingmanns varðandi kynslóðaskiptin — þetta eru samningsmarkmiðin sem eru undir og allir aðilar máls eru meðvitaðir um að eitt helsta úrlausnarefnið þegar kemur að framtíð landbúnaðar er að við tryggjum kynslóðaskipti. Það felur eiginlega tvennt í sér. Við þurfum að laða að nýja og unga bændur en við þurfum líka að gera þeim eldri kleift að bregða búi. Þetta er áskorunin. Það tengist öðrum mikilvægum þætti sem er nýsköpun og annað slíkt þannig að það þarf bara að opna svolítið kerfið og það er markmiðið með þessu nýja stuðningskerfi og því samtali sem á sér stað núna. Það eru auðvitað aðilar samningsins sem eru annars vegar fjármálaráðuneytið og síðan atvinnuvegaráðuneytið og Bændasamtökin og sérfræðingar kallaðir til. Það er vinnan sem fram undan er, en við erum meðvituð um hversu mikilvægt þetta er, það þarf að grípa til aðgerða og það er þess vegna sem samningarnir voru framlengdir um eitt ár.

Ég hefði orðið fyrir vonbrigðum hefði hv. þingmaður ekki nýtt tækifærið og spurt hér um veiðigjöld. En ég held að við getum verið sammála um það að þessi góði rekstrarárangur sem útgerðirnar eru að skila núna er verulega gleðilegur. Það kallar ekki beinlínis á að auðlindagjöld séu lækkuð á þessa atvinnugrein. En auðvitað fylgjumst við alltaf með. Þetta er mannanna verk og við þurfum að fylgjast vel með þessum bolta því að þessi samkeppnishæfni er gríðarlega mikilvæg, alþjóðleg samkeppnishæfni og verðmætasköpun. Og já, það er mjög mikilvægt að við náum að klára lagareldismálið fyrir þinglok.