157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:23]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Fyrst spurningin varðandi Evrópusambandið og landbúnaðinn. Það er auðvitað þannig að evrópsk ríki, innan sem utan Evrópusambandsins, eru að kljást við sömu áskoranir þegar kemur að framtíð landbúnaðarins, þ.e. að feta þetta einstigi milli þess að einblína á matvælaframleiðslu og samþjöppunar eða þess sem við höfum lagt áherslu á og flest lönd Evrópu, sem er að tengja þetta við blómlegar byggðir og minni bú og horfa á fjölbreytileikann. Þetta er krefjandi. Evrópusambandið hefur verið að breyta sinni sameinuðu landbúnaðarstefnu á undanförnum árum einmitt til að koma til móts við þessi minni býli á krefjandi tímum. Ég hef átt sérstakt samtal, í tengslum við búvörusamningana, við finnska landbúnaðarráðherrann af því að ég vildi átta mig á því hvaða leiðir Finnar hefðu farið til að vinna með bændum í nyrðri hluta Finnlands, sem er það svæði sem einna helst líkist okkur landfræðilega og okkar áskorunum. Það hefur verið mjög áhugavert og er efni sem nýtist okkur við gerð endurnýjaðra búvörusamninga eða endurnýjaðs starfsumhverfis í landbúnaði. En já, ég er sannfærð um að við munum njóta góðs af því að vera með í hópi þjóða sem eru að leita að lausn á þessum áskorunum af því að við viljum öll sjá blómlegan landbúnað, fæðuöryggi og matvælaöryggi. Það tengist svo síðari spurningunni — ég er að eyða öllum tímanum í landbúnaðinn — en eitt af því sem við munum auðvitað leggja gríðarlega mikla áherslu á er sérstaða okkar, sem lýtur einmitt að hreinleikanum, að hún sé virt. Hún er ein af okkar mikilvægu náttúruauðlindum.

Varðandi strandveiðar og sveigjanleikann þá er innbyggður sveigjanleiki í stóra kerfinu þar sem menn færa á milli ára. Ég veit að þetta er ekki fyllilega samanburðarhæft en þó nægilega til þess að ég geti sagt að ég get alveg lifað með því að búa svo um hnútana að það sé slíkur sveigjanleiki í litla kerfinu sem heyrir undir annan ráðherra, svo lengi sem það er tryggt að það komi til baka þannig að við séum ekki jafnóðum og smám saman, eins og reyndar hefur verið gert undanfarin ár, að bæta í þann pott án þess að samsvarandi aukning komi í stóra pottinn. Það finnst mér ekki vera raunhæft til lengdar.