fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson, fyrir góða yfirferð á stöðu þeirra mikilvægu málaflokka sem undir hana heyra. Þar á meðal eru málefni neytenda sem hafa lengi verið mér hugleikin. Mig langar til að fá hæstv. ráðherra til að fara nánar út í þær aðgerðir sem verið er að vinna að í þeim málaflokki. Hvernig er verið að treysta umgjörð neytendamála og bæta virka samkeppni og neytendavernd hérlendis á vakt þessarar ríkisstjórnar?
Í öðru lagi langar mig til að ræða um lagareldi. Í hv. atvinnuveganefnd erum við að vinna að nýrri og endurbættri lagaumgjörð um lagareldi. Atvinnugrein sem ég leyfi mér að segja að hafi verið sannkölluð vítamínsprauta inn í margar byggðir á Vestfjörðum og Austfjörðum undanfarin ár. Það er alveg ljóst að það er tímabært að búa þessari atvinnugrein betri umgjörð svo hún geti vaxið í sátt við samfélag og náttúru og það er stefnan. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því hvaða væntingar hæstv. ráðherra hefur um vöxt og ekki síður sjálfbæra þróun atvinnugreinarinnar á næstu árum og áratugum?