fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar sem eru báðar mjög öflugar. Ég ætla að leyfa mér að byrja á eldinu af því að við enduðum svolítið þar í fyrra samtali við annan hv. þingmann. Þessi heildarlöggjöf sem nú er í meðförum þingsins leikur lykilhlutverk í því að við náum að styrkja stoðirnar undir þessa mikilvægu atvinnugrein sem, nákvæmlega eins og hv. þingmaður kemur inn á, gerir hvoru tveggja, er gríðarlega mikilvægt innlegg í verðmætasköpun næstu árin og til framtíðar ef vel tekst til hjá okkur. Ekki bara það heldur skiptir það svo gríðarlega miklu máli við það að auka fjölbreytileikann í atvinnusköpun hjá okkur og verðmætasköpun og tryggja uppbyggingu á starfsemi víðs vegar um landið, ekki síst á þeim svæðum sem helst hafa þurft að þola erfiða tíma þegar kemur að atvinnumálum. Þetta er því alveg gríðarlega mikilvægt mál og fer líka vel saman við það sem er að gerast á mörkuðum erlendis, þ.e. eftirspurnin eftir þessari framleiðslu okkar. Þar njótum við náttúrlega mjög góðs af annars vegar því að við höfum gott orðspor þegar kemur að sjávarútvegsmálum og útflutningi á fiski og síðan hitt að þetta frumvarp mun tryggja heildarramma þar sem bæði eru settar stoðir undir fjárhagslegan vöxt fyrirtækjanna og síðan það að vega upp á móti neikvæðum umhverfisáhrifum. Ég árétta því hversu mikilvægt það er að við náum að klára þetta mál.
Varðandi neytendamálin, nú er ég búin með allan tímann þannig að svoleiðis fór nú það en ég vona að ég fái tækifæri til að koma inn á þau í seinni umferð.