fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör. Ég ætla að halda áfram að ræða útfærslu lagareldisfrumvarpsins sem nú er til meðferðar hjá hv. atvinnuveganefnd og mig langar sérstaklega að víkja að fyrirhuguðum breytingum á fjármögnun til sveitarfélaga. Í frumvarpinu er lagt til að Fiskeldissjóður verði lagður niður og í hans stað verði tekið upp svokallað samfélagsgjald. Markmiðið er að einfalda fyrirkomulagið þannig að sveitarfélög sem hýsa lagareldi fái tekjur beint til sín í stað þess að sækja um styrki. Slíkt getur aukið fyrirsjáanleika og dregið úr umsýslu og ég hef orðið þess áskynja að sveitarfélög séu almennt sátt við þessa breytingu. Hins vegar er gert ráð fyrir því að sveitarfélögin komi sér sjálf saman um skiptingu tekna. Ef slíkt samkomulag næst ekki er ráðuneyti ætlað að grípa þar inn í.
Virðulegi forseti. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvernig sér ráðuneytið fyrir sér að bregðast við ef ágreiningur kemur upp á milli sveitarfélaga um skiptingu samfélagsgjaldsins? Og einnig: Mun ráðherra setja skýrar reglur eða viðmið um úthlutunina þannig að tryggt sé gagnsæi, jafnræði og fyrirsjáanleiki? Hæstv. ráðherra heldur þá einnig áfram með fyrri fyrirspurn mína varðandi neytendamálin.