157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til umræðunnar. Ég ætla í fyrri spurningu minni að koma inn á sjávarútveg, eldi og landbúnað. Í fyrsta lagi varðandi eldið og skattlagningu sem þar er fyrirhuguð út frá því frv. sem liggur fyrir frá hæstv. ráðherra. Hvaða hluta af skattlagningaráformum telur ráðherrann vera kannski hættulegastan hvað það varðar að ýta undir áframhaldandi vöxt verðmætasköpunar í eldinu í ljósi þess hversu mikilvægt eldið og vöxtur þess og góður árangur er hvað varðar hagvaxtarþróun og aukna velsæld í samfélaginu? Síðan langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í landbúnaðinn. Það er auðvitað þannig, eins og við þekkjum og kom fram í ræðu ráðherra áðan, að því var frestað um ár að uppfæra búvörusamninga og eins og hæstv. ráðherra kom inn á eru tölurnar í fjármálaáætluninni miðaðar við núverandi fyrirkomulag. Er hæstv. ráðherra sem sagt að upplýsa þingið um að ef búvörusamningar hefðu verið kláraðir í ár eins og ráð var fyrir gert þá hefði orðið halli á ríkissjóði samkvæmt plönum ríkisstjórnarinnar á næsta ári? Árið 2027? Ég er kannski að einhverju marki að draga fram hversu litlu munar þarna á plús og mínus í stóru 1.600 plús milljarða mynd ríkisfjármálanna. Í ljósi þess að því hefur verið frestað um ár að ná saman um þetta, telur hæstv. ráðherra eitthvað líklegt til að koma upp í þá veruna að það frestist enn meira en nú þegar er búið að ramma inn samkvæmt því samkomulagi sem gert var?