fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar. Sú fyrri lýtur að eldinu og ef ég skildi hv. þingmann rétt, þá spyr hann: Hvað í gjaldtökunni er hættulegast fyrir framvinduna? Mér finnst tiltölulega einfalt að svara því til að það væri núverandi fyrirkomulag. (BergÓ: Það var ekki spurningin. )Það var ekki spurningin, ég er líka rétt að byrja. Það hættulegasta væri að halda hlutunum óbreyttum og ég ætla bara að leyfa mér að halda því hér til haga vegna þess að mál mitt er enn þá í meðförum þingsins og klárist það ekki þá gildir núgildandi gjaldtaka sem er umtalsvert hærri en sú sem gert er ráð fyrir hér í lögunum. En ég verð að viðurkenna að það er verið að steypa saman tveimur gjöldum miðað við núgildandi lög, þ.e. framleiðslugjaldinu og umhverfisgjaldinu í eitt framleiðslugjald sem miðar við afkomu en ekki veltu eins og hv. þingmaður veit. En þegar hann er að tala um gjaldtöku er hann þá að tala um önnur sektarákvæði og annað slíkt? Hann útskýrir það kannski fyrir mér á eftir af því að það er ekki gjaldtaka af atvinnugrein samkvæmt mínum skilningi en vissulega sektarákvæðið ef óhönduglega tekst til. Við getum kannski tekið umræðuna á eftir varðandi það ef hv. þingmaður getur aðeins farið nánar ofan í fyrirspurnina. Varðandi endurnýjun á samningunum: Nei, það var ég sannarlega ekki að gera heldur bara nákvæmlega að vera nákvæm og tala ekki um efni fram og útskýra að það sama hefði átt við núgildandi samninga þó að þeir hefðu ekki verið framlengdir, þeir væru í gildi til ársloka þessa árs þannig að eðli málsins samkvæmt þá liggur samningurinn ekki fyrir. Það er nú eiginlega eina ástæðan þegar verið er að semja, hvort eitthvað komi út úr því. Þegar það er komið þá fer það inn í áætlanir sem gerðar eru. (Forseti hringir.) Þannig að ég held að það sé fulllangt gengið að draga einhverjar ályktanir um halla eða afgang á ríkissjóði út frá þessu saklausa kommenti mínu hér.