fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Áhrifin af nýgerðum búvörusamningum á árinu 2026, hefðu plönin gengið eftir, hefðu komið fram á árinu 2027 þar sem er eingöngu gert ráð fyrir 1 milljarðs afgangi á ríkissjóði. Það var það sem ég var að fara í þeim efnum.
Mig langar núna að venda kvæði mínu í kross og spyrja hæstv. ráðherra út í ferðaþjónustuna sem heyrir undir ráðherrann. Það eru tvö mál sem hafa verið dálítið rædd hér í dag, annars vegar er það baðlónagjaldið þar sem á að hækka virðisaukaskatt af aðgangseyri i baðlón landið um kring, færa úr 11% í 24% virðisaukaskattsþrep. Hins vegar eru áform uppi um að framlengja ekki tímabundna framlagið upp á 100 millj. kr. í flugþróunarsjóð. Það er kannski eitt sveitarfélag sem verður fyrir áberandi höggi vegna þessara tveggja ákvarðana sem er Akureyri sem annars vegar, held ég að sé óhætt að segja, hafi notið hvað mests árangurs af störfum og verkefnum flugþróunarsjóðs og hins vegar auðvitað Skógarböðin, sem við þekkjum, sem eru eitt af þessum baðlónum sem áform eru uppi um að auka skattlagningu á. Hvort telur hæstv. ráðherra sem ráðherra ferðamála að þessar tvær ákvarðanir, verði þær staðfestar, hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á ferðaþjónustu á Akureyri?