157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:45]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þetta er auðvitað alvarlegt mál. Staðan í heiminum og öll þau jaðaráhrif sem það hefur á atvinnusköpun og lífsviðurværi fólks, þótt ekki séum við beinlínis í hringiðu stríðsátaka, sannarlega ekki. En við erum mjög meðvituð um þessa stöðu og eins og hv. þingmaður nefnir þá hefur verið gripið inn í við sérstakar aðstæður áður. Ég lét taka það saman í tengslum við þessa vinnu sem við erum í núna við mótun eða endurnýjun á nýju stuðningskerfi í landbúnaði, að á gildistíma þessara samninga, eða frá 2016, hafa aukagreiðslur verið mjög reglulegar vegna alls kyns áfalla sem dunið hafa yfir, hvort sem það er vegna innlendra aðstæðna, yfirleitt vegna veðurs, eða aðstæðna erlendis. Ég held að ég fari rétt með að það hleypur á 10 milljörðum þegar safnast saman. Auðvitað er eitt af því sem er verst að athuga þegar við búum þetta stuðningskerfi til hvort ekki sé innbyggður meiri sveigjanleiki í það þannig að þetta sé eitthvað sem ekki þarf inngrip ríkisins í, heldur að við séum með kerfi sem er sveigjanlegra á marga vegu. En við erum að fylgjast með og þær upplýsingar sem ég hef — það er auðvitað áburðurinn sem getur reynst gríðarlega þungur og það þarf að vera tímanlega í því þannig að það hefur vissulega verið hnippt í okkur og hefur komið fram í samtölum okkar og á fundum með forsvarsfólki Bændasamtakanna sem og einstökum bændum, ráðuneytinu og sérfræðingum. Þetta er bara hlutur sem við fylgjumst mjög vel með og erum auðvitað meðvituð um að grípa inn í ef þarf áður en í óefni er komið.